Ungt fólk á listabraut 7. mars 2007 06:00
Borgarleikhúsið fékk góða gesti í liðnum mánuði en þá voru dyr hússins opnaðar ungu fólki sem vildi kynna sér leikhúsmiðilinn. Forsvarsmenn leikhússins hvetja þannig til þess að ungt fólk kynnist ekki aðeins skemmtuninni heldur læri einnig að þekkja leikhúsið sem farartæki fyrir skoðanir, tilfinningar og baráttumál. Nemendur þriggja skólastiga tóku þátt í verkefninu og komu hópar úr Háteigsskóla, Borgarholtsskóla og leiklistardeild Listaháskólans í heimsókn og kynntust starfsemi hússins, og ræddu þar við listamenn um leikhúsið, möguleika þess, áhrifamátt og fjölbreytileika. Eftir þessa kynningu unnu hóparnir þrír frumsamin verkefni sem sýnd verða á Litla sviði Borgarleikhússins í kvöld kl. 20. Í tengslum við verkefnið var einnig efnt til örleikritunarsamkeppni fyrir ung leikskáld. Þátttakendur yngri en 25 ára eru hvattir til þess að skila inn verki eða hugmynd fyrir kl. 17 í dag. Verkin mega ekki vera lengri en 5.000 slög eða um það bil tvær síður. Verkunum skal skilað í fjórum eintökum merktum höfundinum, aldri, skóla, heimilisfangi og síma. Milli kl. 13-17 verður tekið á móti hugmyndum í forsal leikhússins og mun dómnefndin sitja við lestur í allan dag. Sá heppni hlýtur að launum árskort fyrir tvo í leikhúsið. Úrslitin verða kunngjörð í lok dagskrárinnar. Þess má einnig geta að Leikfélag Reykjavíkur býður börnum, 12 ára og yngri, frítt á leiksýningar, aðrar en barnasýningar og söngleiki, séu börnin í fylgd forráðamanna.
Mest lesið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Tónlist Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Lífið Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Var farin að fá kvíðaköst þegar dóttirin bað um að fara í göngutúra Lífið Lada Sport okkar tíma Lífið samstarf Fleiri fréttir Snerting, Ljósbrot og Ljósvíkingar bítast um Edduna Bezos bolar Broccoli burt frá Bond Næsti Dumbledore fundinn Bauð Bandaríkin velkomin í hóp konungsríkja Jóhannes Haukur fer mikinn í Marvel stiklu Svaraði kallinu frá Ben Stiller Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Sjá meira