Fótbolti

Sigurður Ragnar valdi 40 stúlkur

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, nýráðinn landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, valdi í dag sinn fyrir landsliðshóp. Um er að ræða æfingahóp sem kemur saman helgina 6.-7. janúar og undirbýr sig fyrir Algarve Cup sem fram fer í mars.

Sigurður Ragnar var ekkert að tvínóna við hlutina heldur valdi alls 40 stúlkur í æfingahópinn og má segja að hann gefi þannig til kynna að margir leikmenn koma til greina í landsliðið.

Breiðablik og Valur eiga langflesta fulltrúa í æfingahópnum, Blikar 12 stúlkur en Valur 10 stúlkur. KR kemur næst með alls fimm stúlkur í hópnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×