Handbolti

Valur lagði HK

Valsmenn eru á toppi DHL deildarinnar fyrir jólafrí
Valsmenn eru á toppi DHL deildarinnar fyrir jólafrí Mynd/Valli

Valur lagði HK 25-22 í uppgjöri liðanna á toppi DHL deildarinnar í handbolta í dag eftir að Valsmenn höfðu yfir 14-10 í hálfleik. Markús Máni Michaelsson skoraði 8 mörk fyrir Val og Davíð Höskuldsson og Arnór Gunnarsson skoruðu 5 hvor. Valdimar Þórsson skoraði 8 mörk fyrir HK og Ragnar Hjaltested 6 mörk.

Valsmenn eru fyrir vikið í efsta sæti deildarinnar með 15 stig og HK í öðru með 15 stig. Akureyri skellti sér í þriðja sætið með góðum sigri á Íslandsmeisturum Fram fyrir norðan 33-28. Stjarnan vann nauman sigur á ÍR í Austurbergi 26-25 og Haukar lögðu Fylki 33-29 á Ásvöllum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×