John McCain hyggur á framboð í forsetakosningum í Bandaríkjunum árið 2008 10. nóvember 2006 22:30 John McCain. MYND/AP
Búist er við því að John McCain, öldungadeildarþingmaður repúblikana í Arisóna, ætli sér að bjóða sig fram í forsetakosningunum sem verða haldnar árið 2008. Þótt engin formleg ákvörðun hafi verið tekin segja nánir samverkamenn hans að vinna við hugsanlegt framboð sé þegar hafin. Þrátt fyrir ósigur repúblikana í þingkosningnum sem fram fóru 7. nóvember síðastliðinn telur McCain að hann eigi nú góða möguleika á að sannfæra kjósendur um að kjósa sig. Samkvæmt skoðanakönnunum sem nýlega voru gerðar er McCain vinsæll í hópi óákveðinna kjósenda en það er sá hópur sem kaus demókrata í umræddum þingkosningum og veitti þeim stjórn í báðum deildum þingsins í fyrsta sinn í tólf ár. En af hverju að byrja svo snemma? Jú, þar sem í fyrsta sinn í 80 ár mun hvorki sitjandi forseti né varaforseti bjóða sig fram. McCain er hinsvegar 70 ára og mun því verða elsti forseti Bandaríkjanna ef hann nær kjöri. McCain bauð sig fram í prófkjöri repúblikana til forsetaembættisins árið 2000 en tapaði þar fyrir George W. Bush. Fréttavefur ABC fréttastofunnar skýrir frá þessu.
Bandaríkin Erlent Fréttir Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira