Saka arabíska vígamenn um morð á börnum í Darfur 3. nóvember 2006 14:09 MYND/AP
Friðargæsluliðar á vegum Afríkubandalagsins í Darfur-héraði í Súdan saka arabíska vígamenn úr svokölluðum Janjawwed-sveitum um að hafa drepið að minnsta kosti 63 borgara í árásum í liðinni viku. Þar af sé tæpur helmingur börn undir tólf ára aldri. Árásirnar voru gerðar á búðir í vesturhluta Darfur þar sem uppreisnarmenn andsnúnir ríkisstjórn landsins hafa ráðið lögum og lofum. Ríkisstjórn Súdans hefur sætt harðri gagnrýni á alþjóðavettvangi fyrir að styðja við bakið á arabísku vígamönnunum en ríkisstjórnin segist byrjuð að afvopna sveitir þeirra. Fram kemur á vef BBC að íbúar í þorpum í Vestur-Darfur nærri landamærunum að Tsjad flýi nú heimili sín vegna árása Janjaweed-sveitanna og segir talsmaður uppreisnarmanna að sveitirnar ætli sér augljóslega að ganga á milli bols og höfuðs á uppreisnarmönnum. Átökin í Darfur hafa staðið yfir í um þrjú ár og er talið að um 200 þúsund manns hafi látist af þeirra völdum og um tvær milljónir manna þurft að yfirgefa heimili sín. Janjaweed-sveitirnar hafa verið sakaðar um þjóðernishreinsanir á svörtum Afríkubúum í landinu en súdönsk stjórnvöld segja vandann ýktan í fjölmiðlum og hafa neitað að taka á móti friðargæsluliði frá Sameinuðu þjóðunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Fleiri fréttir Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Sjá meira