Olíuverð lækkar áfram 1. nóvember 2006 15:27 Við bensínstöð í Kína þegar olíuverð var í hæstu hæðum í júlí. Mynd/AFP
Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega í dag þrátt fyrir að OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, hefðu ákveðið að draga úr olíuframleiðslu frá og með deginum í dag til að sporna gegn frekari verðlækkunum á olíu. Greiningaraðilar draga í efa að einhugur sé um ákvörðunina hjá aðildarríkjunum 11, sem felur í sér að olíuframleiðsla dregst saman um 1,2 milljónir tunna á dag. Það er nokkru meira en búist var við. Hráolíuverð lækkaði um 14 sent á markaði í New York í Bandaríkjunum og stendur nú í 58,59 dölum á tunnu. Verð á Norðursjávarolíu lækkaði um 12 sent á markaði í Lundúnum í Bretlandi og fór í 58,91 dal á tunnu. Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór í methæðir um miðjan júlí og stóð þar í mánuð. Um miðjan ágúst tók verðið að lækka á ný og hefur nú lækkað um heil 20 prósent frá því það fór í hæstu hæðir.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira