Daniel Ortega líklegur til sigurs í Níkvaragva 31. október 2006 14:52
Líkur benda til þess að Daniel Ortega, fyrrverandi leiðtogi Sandinista í Níkvaragva, fari með sigur af hólmi í forsetakosningunum sem haldnar verða í landinu næstkomandi sunnudag. Ortega sem leiddi vinstri stjórn í Níkvaragva árið 1979-1990 var einn af helstu andstæðingum Bandaríkjanna í Suður-Ameríku í kalda stríðinu, og hersveitir hans börðust við skæruliðasveitir Kontra, sem Bandaríkjamenn studdu. Ortega hefur nú tekið kaþólska trú og greiddi á dögunum atkvæði með því að allar fóstureyðingar yrðu bannaðar í landinu, jafnvel eftir nauðganir og þótt barnsburður ógnaði lífi hinna verðandi mæðra. Með því vildi hann tryggja sér stuðning Kaþólsku kirkjunnar, sem er mjög valdamikil í landinu. Mannréttindafrömuðir hafa varað við því að Ortega hafi síður en svo hreina samvisku á því sviði, enda hefur hann verið sakaður um að bera ábyrgð á hvarfi þúsunda pólitískra andstæðinga. Ortega nýtur síður en svo óskoraðs stuðnings; það er líklegra að meirihluti hinna fimm milljóna íbúa landsins sé á móti honum. Ný kosningalög gera hinsvegar að verkum að hann er líklegur til þess að vinna sigur, í fyrstu umferð kosninganna.
Erlent Fréttir Mest lesið Fólk skilji ekki eftir ósprungna flugelda: „Sprakk strax beint í andlitið á honum“ Innlent Brúin yfir Ferjukotssíki fallin Innlent Ferðamönnum bjargað af þaki bíls við Kattarhryggi Innlent Fluttur úr landi grunaður um að valda gassprengingu sem drap einn Innlent Hæstiréttur sker úr um hvort samræði við barn sé nauðgun Innlent Brottvísunin endanleg og nær ekki aðgerðinni Innlent Gerðu umfangsmikla árás á vesturhluta Úkraínu Erlent „Við erum að sjá þarna hluti sem hafa ekki sést áður í heiminum“ Innlent Mál horfinna systra skekur Skotland Erlent Sat fyrir svörum vegna áfengisdrykkju og viðhorfa til kvenhermanna Erlent Fleiri fréttir Sakar Rússa um skipulagningu hryðjuverka Óttast áhrif orðræðu Trumps á fjárfesta Mál horfinna systra skekur Skotland Gerðu umfangsmikla árás á vesturhluta Úkraínu Bjargaði túristum í vanda og laxeldi í Seyðisfirði mótmælt Bönnuðu bardaga nýnasista og gengisfélaga í Helsinki Tvö geimför á leið til tunglsins Reyna að banna Bandidos-mótorhjólagengið í Danmörku 97 árásir á „örugga svæðið“ á Gasa Forseti Suður-Kóreu handtekinn í mikilli aðgerð Minni vindur í LA en óttast hafði verið Vilja nota fleiri aðferðir en bara BMI til að meta offitu Sat fyrir svörum vegna áfengisdrykkju og viðhorfa til kvenhermanna Greiddi aðila sem þóttist vera Brad Pitt tugi milljóna Bræðurnir Tate lausir úr stofufangelsi, aftur Hamas-liðar samþykktu drög að friðarsamkomulagi Að minnsta kosti hundrað hafa dáið ofan í lokaðri námu Lögðu kapp á að senda Pútín viðvörun vegna eldsprengja Eldar sagðir loga víða í Rússlandi eftir árásir Flokkur Farage fast á hæla Verkamannaflokksins Segist ítrekað hafa komið í veg fyrir frið á Gasa Segir að Trump hefði verið sakfelldur Þessi troða upp á innsetningarathöfn Trump Búa sig undir það versta Hyggjast leggja 100 prósent skatt á eignakaup útlendinga Bloomberg segir viðræður hafa átt sér stað um sölu TikTok til Musk Biden segir vopnahlésviðræður á lokametrunum Að minnsta kosti 24 látnir Máluðu gröf Charles Darwin í mótmælaskyni Fundu leifar af fíkniefnum í þinghúsinu eftir jólagleði þingflokka Sjá meira