Barist gegn fordómum í Þýskalandi 24. október 2006 17:28 Charlotte Knobloch, formaður Æðstaráðs Gyðinga í Þýskalandi, á blaðamannafundi um árásir gegn minnihlutahópum sem haldinn var í dag. MYND/AP
Óttast er árásir nýnasista í Þýskalandi í ár verði mun fleiri en hefur mælst á hverju ári frá því Seinni heimsstyrjöldinni lauk. Þetta er niðurstaða samtaka í Þýskalandi sem berjast gegn kynþáttafordómum þar í landi. Niðurstaða samtakanna er sú að árásir hafa verið margar í júní og júlí þegar heimsmeistaramótið í knattspyrnu fór fram í Þýskalandi. Samkvæmt tölu frá þýsku alríkislögreglunni, sem birtar voru fyrr í þessum mánuði, sýna að árásum öfgasinnaðra hægrimanna á almenna borgara fjölgaði um 20%, eða um 8.000, á fyrstu 8 mánuðum þessa árs samanborið við sama tíma í fyrra. Samkvæmt upplýsingum samtakanna voru árásir á gyðinga í júní og júlí rúmlega eitt þúsund. Þessar upplýsingar vekja ugg meðal ráðamanna í Þýskalandi. Innanríkisráðherra Þýskalands segir ljóst að stjórnvöld verði að grípa til harðra aðgerða til að snúa þessari þróun. Það var í austurhluta landsins í júlí sem öfgasinnaðir hægrimenn brenndu eintök af Dagbók Önnu Frank og vakti það hörð viðbrögð hjá þýskum stjórnmálamönnum og baráttusamtökum gegn kynþáttafordómum. Þýsk stjórnvöld ætla sér að leggja til hliðjar jafnvirði rúmlega 2 milljarða íslenskra króna á næsta ári fyrir verkefni sem eiga að stuðla að umburðarlyndi og vinna gegn fordómum. Eitthvað af þessu fé verður tekið frá verkefnum þar sem barist er gegn ofbeldi þeirra hópa sem boða kynþáttafordóma.
Erlent Fréttir Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Sjá meira