Reyndi að sprengja rörsprengjur fyrir utan bandaríska sendiráðið 23. október 2006 23:52 Sprengjusérfræðingar að störfum fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna í Caracas í dag. MYND/AP
Venesúelamaður var handtekinn þegar hann reyndi að sprengja heimagerðar rörsprengjur fyirr utan bandaríska sendiráðið í Caracas í dag. Engan sakaði og götunni sem sendiráðið stendur við var lokað þar til sprengjusérfræðingar höfðu fargað sprengjunum. Maðurinn hafði komið sprengjunum fyrir og var að gera sig líklegan til að sprengja þær þegar hann var handtekinn. Ekki er vitað hvað honum gekk til. Fjölmiðlar í Venesúela telja þó líklegt að maðurinn, sem er námsmaður, hafi viljað vekja athygli á sér með athæfinu. Grunur leikur á að maðurinn hafi síðan ætlað að koma fleiri sprengjum fyrir utan við ísraelska sendiráðið. Það var leigubílstjóri, sem hafði ekið manninum um Caracas, sem lét vita af dularfullu athæfi mannsins. Maðurinn var þá eltur uppi og handtekinn. Samskipti Bandaríkjanna og Venesúela hafa versnað töluvert síðan Hugo Chavez, forseti Venesúela, komst til valda árið 1999. Hann er vel þekktur fyrir andstöðu sína við stefnu Bush Bandaríkjaforseta, sem hann hefur sagt vera hinn vonda sjálfan.
Erlent Fréttir Mest lesið Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Innlent Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Veður Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Innlent Loka veginum til morguns vegna snjóflóðs Innlent Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Innlent Soham-morðinginn látinn Erlent Tveir á slysadeild með áverka í andliti Innlent Alvöru inniveður um helgina Innlent „Ég tel þetta ekki vera ákveðna höfnun á Alexöndru“ Innlent Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Innlent Fleiri fréttir Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Sjá meira