ESB fordæmir brottvísun fulltrúa frá Eþíópíu 20. október 2006 17:50 Meles Zenawi, forsætisráðherra Eþíópíu. MYND/AP
Evrópusambandið hefur fordæmt þá ákvörðun stjórnvalda í Eþíópíu að vísa tveimur sendifulltrúum sambandsins úr landi. Fulltrúar ESB segja það fullkomlega óásættanlegt. Þeir eru grunaðir um að hafa reynt að smygla tveimur flóttamönnum til Kenía. Annar þeirra er eþíópískur lögfræðingur sem vinnur fyrir Framkvæmdastjórn sambandsins. Yfirvöld í Eþíópíu segja flóttamennina hafa verið handtekna grunaða um alvarlega glæpi. Ekki er þó gefið upp hvað þeir eigi að hafa gert af sér. Óttast er að þeir muni sæta pyntingum og segja fulltrúar Amnesty International mikla hættu á því. Stjórnvöld í Eþíópíu hafa mátt sæta töluverðri gagnrýni frá alþjóðasamfélaginu síðustu misseri, ekki síst vegna umdeildra þingskosninga í landinu í maí í fyrra. ESB hefur hætt fjárhagaðstoð við landið vegna kosninganna og öldu ofbeldis sem hefur dunið á landinu síðan þá. Fram að kosningunum hafi verið litið á Meles Zenawi, forsætisráðherra, sem mann umbóta sem væri af nýrri kynslóð leiðtoga í Afríku. Yfirmaður kosningaeftirlits ESB, Ana Gomes, segir í skýrslu, sem lekið var í fjölmiðla í gær, að fjöldamorð eftir kosningarnar staðfestu að stjórnvöld í Eþíópíu virtu ekki mannréttindi.
Erlent Fréttir Mest lesið Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Innlent Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Veður Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Innlent Loka veginum til morguns vegna snjóflóðs Innlent Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Innlent Soham-morðinginn látinn Erlent Tveir á slysadeild með áverka í andliti Innlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Innlent Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Fleiri fréttir Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Sjá meira