Segir nægar vísbendingar til að ákæra Katsav 16. október 2006 12:45
Ísraelska lögreglan telur nægilegar vísbendingar fyrir hendi til að ákæra Moshe Katsav, forseta landsins, fyrir nauðganir og önnur kynferðisbrot. Í yfirlýsingu lögreglunnar frá því í gær kemur meðal annars fram að rökstuddur grunur sé fyrir því að Katsav hafi gerst sekur um nauðgun, kynferðislega áreitni, umboðssvik og símahleranir, bæði í forsetatíð sinni og á meðan hann var ráðherra í ísraelsku ríkisstjórninni á tíunda áratugnum. Tíu konur eru sagðar hafa orðið fyrir barðinu á honum, þar af á tveimur þeirra að hafa verið nauðgað. Ríkissaksóknari mun á endanum taka ákvörðun um hvort Katsav verði ákærður en til að það geti orðið verður ísraelska þingið, Knesset, að svipta forsetann friðhelgi sinni. Þingið kom saman að nýju í morgun eftir sumarleyfi. Katsav var þar hvergi sjáanlegur enda höfðu margir þingmenn hótað að sniðganga athöfnina ef hann væri viðstaddur. Katsav, sem er 61 árs og hefur verið forseti frá árinu 2000, hefur neitað allri sök og sagt málið runnið undan rifjum pólitískra andstæðinga sinna. Ef hann verður ákærður verður hann að öllum líkindum að segja af sér embætti enda eru ásakanirnar með þeim alvarlegustu sem ísraelskur leiðtogi hefur verið borinn.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Fleiri fréttir Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Sjá meira