Innlent

Bílvelta á Reykjanesbraut

MYND/Róbert

Beita þurfti klippum til að ná ökumanni fólksbíls, sem valt á Reykjanesbrautinni í nótt, út úr bílnum. Maðurinn var einn í bílnum og reyndist hann lítið slasaður. Nóttin var annars erilsöm hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en farnir voru rúmlega fjörtíu sjúkraflutningar í nótt sem er tvöfalt meira en venjulega. Lögreglan hafði einnig í nógu að snúast þar sem mikil ölvun var í höfuðborginni í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×