Innlent

Talverður erill hjá lögreglunni í Keflavík í nótt

Talsverður erill var hjá lögreglunni í Keflavík á næturvaktinni vegna ölvunar, slagsmála og hávaðaútkalla. Tvær minniháttar líkamsárásir voru tilkynntar, önnur á skemmtistaðnum H-punktinum og hin á Njarðabraut í Njarðvík. Þá voru tvær rúður brotnar, önnur í versluninni að Hólmgarði 2 og hin hjá Lyf og Heilsu, Suðurgötu 2. Ekki hafði verið farið inn.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×