Sport

Þrjár breytingar á landsliðshóp Eyjólfs

Hér má sjá byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Norður-Írum í Belfast á dögunum
Hér má sjá byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Norður-Írum í Belfast á dögunum Mynd/Valli

Eyjólfur Sverrisson hefur gert þrjár breytingar á landsliðshópnum sem mætir Lettum og Svíum í undankeppni EM í næsta mánuði. Pétur Hafliði Marteinsson, Marel Jóhann Baldvinsson og Emil Hallfreðsson koma inn í hópinn fyrir Heiðar Helguson, Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Ólaf Örn Bjarnason.

Hér gefur að líta 20 manna hóp Eyjólfs sem mætir Lettum ytra þann 7. október og Svíum á Laugardalsvelli þann 11. október:

Markverðir:

Árni Gautur Arason, Vålerenga

Daði Lárusson, FH

Útileikmenn:

Hermann Hreiðarsson, Charlton

Brynjar Björn Gunnarsson, Reading

Arnar Þór Viðarsson, Twente

Eiður Smári Guðjohnsen, Barcelona

Pétur Hafliði Marteinsson, Hammarby

Indriði Sigurðsson, Lilleström

Jóhannes Karl Guðjónsson, AZ Alkmaar

Ívar Ingimarsson, Reading

Kristján Örn Sigurðsson, Brann

Grétar Rafn Steinsson, AZ Alkmaar

Marel J. Baldvinsson, Molde

Stefán Gíslason, Lyn

Veigar Páll Gunnarsson, Stabæk

Hjálmar Jónsson, Gautaborg

Kári Árnason, Djurgården

Hannes Þ. Sigurðsson, Bröndby

Helgi Valur Daníelsson, Öster

Emil Hallfreðsson, Malmö




Fleiri fréttir

Sjá meira


×