Losun koltvísýrings næstmest í Reykjavík á Norðurlöndum 28. september 2006 11:35 MYND/Pjetur
Losun koltvísýrings vegna samgangna er næstmest í Reykjavík samkvæmt mælingum í sjö stórborgum á Norðurlöndunum. Þetta kom fram á stórborgaráðstefnu norrænu ríkjanna sem haldin var á dögunum og greint er frá á vef Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. Þar segir enn femur að losun koltvísýrings vegna samgangna á hvern íbúa hafi reynst mest í Málmey í Svíþjóð en af höfuðborgum landanna hafi hún verið mest í Reykjavík.Útstreymi koltvísýrings minnkaði á árabilinu 1990-2000 í öllum borgunum en jókst aftur eftir aldamótin nema í Málmey og Stokkhólmi. Telur Umhverfssvið það valda áhyggjum og getur sér þess til að aukið útstreymi megi rekja til aukinnar velmegunar á Norðurlöndum. Fram kemur að samgöngur í Reykjavík valda um 95 prósentum af útstreymi koltvísýrings en eins og kunnugt er hefur bílum á götum borgarinnar fjölgað mikið undanfarin ár.Almenn orkunotkun á árabilinu 1990 til 2003 jókst mest í Gautaborg og Reykjavík en í Reykjavík vega samgöngur þyngst í aukningu orkunotkunar.Þá segir í frétt Umhverfissviðs að borgirnar sjö glími við ólík verkefni þessu tengd. Í Helsinki í Finnlandi valdi húshitun með kolabrennslu langmestu útstreymi koltvísýrings og sömuleiðis í Kaupmannahöfn en Reykjavík sé slíkt útstreymi lægst því hér eru hús kynt með jarðvarma. Gautaborg er aftur á móti hæst þjóðanna í útblæstri þegar sjónum er beint að iðnaði.
Fréttir Innlent Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að vitnisburði sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Sjá meira