Þörf á auknu fjármagni og nýjum fjármögnunarleiðum 22. ágúst 2006 15:52
Þörf er á fjármögnun til íslenskra háskóla umfram það sem hið opinbera hefur tök á að leggja til þar sem líklegt er að hægi á vexti þjóðarframleiðslu næstu misserin. Aukning fjármagns til háskólastigsins og nýjar fjármögnunarleiðir verða meginviðfangsefni stefnumótunar fyrir háskólamenntun á Íslandi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu OECD, Efnahags- og framfarastofnunarinnar, um niðurstöður úttektar á íslenska háskólastiginu. Skýrslan er hluti af úttekt OECD á háskólastiginu í 24 löndum og er markmið hennar að kanna áhrif opinberrar stefnumörkunar í málefnum háskóla í löndunum og vísa veginn um úrbætur og nýjungar. Hún er samin af sex erlendum sérfræðingum sem dvöldu hér á landi í vikutíma, heimsóttu alla háskóla og hittu að máli fjölmarga hagsmunaaðila, þar á meðal fulltrúa atvinnulífsins. Skýrslan skiptist í fimm hluta. Í fyrsta hluta er kynning á landi og þjóð og aðstæðum á Íslandi. Í öðrum hluta er fjallað um bakgrunn og helstu einkenni stefnumörkunar fyrir háskólastigið. Þriðji hlutinn er greining á styrkleikum íslenska háskólakerfisins og þeim þáttum þar sem úrbóta er þörf. Forgangsverkefni í stefnumótun eru sett fram í fjórða hluta og ábendingar dregnar saman í lokakafla. Umsögn sérfræðinganna um háskólastigið á Íslandi er almennt fremur jákvæð en þó benda þeir á að hin öra þróun kerfisins á síðustu árum geti valdið vandamálum. Meðal annars segir að eftir hraða uppbyggingu íslenska háskólastigsins undanfarin ár sé nauðsynlegt að samhæfa stefnumótun og endurskoða tiltekna þætti í starfseminnar. Þetta eigi sérstaklega við um fjármögnun kennslu og rannsókna í háskólum og gæðamál. Bent er á að í flestum löndum hafi aukning útgjalda háskólastigsins verið hraðari en aukning þjóðarframleiðslu. Aðsókn aukist sífellt og háskólamenntun sé talin eitt mikilvægasta tæki til þróunar þekkingarþjóðfélagsins. Þarna sé Ísland engin undantekning og nemendafjöldi á íslenska háskólastiginu hafi aukist enn hraðar en víðast annarsstaðar á síðustu árum, samhliða hinum umfangsmiklu kerfisbreytingum. Líta megi á þetta sem byltingu sem hljóti að kalla á nýjar lausnir við fjármögnun. Sérfræðingar OECD segja að smæð íslenskra háskóla sé sérstakt vandamál og óhagkvæmar rekstrareiningar áberandi. Þó beri að hafa hugfast að mikill vöxtur hafi orðið í efnahagslífi þjóðarinnar síðustu árin sem hafi gert stjórnvöldum kleift að auka framlög til háskólastigins verulega og ýta þannig undir breytingar. Þrátt fyrir þetta eigi sumir háskólanna við rekstrarvanda að stríða. Vakin er athygli á að á Íslandi hafi verið litið á aðgang að háskólanámi sem rétt fremur en tækifæri og núverandi stefna geri frekar ráð fyrir því að stofnanir keppi um stúdenta en að stúdentar keppi um námspláss. Skýrsluhöfundar telja að þörf verði fyrir fjármögnun umfram það sem hið opinbera hefur tök á að leggja til þar sem líklegt sé að hægi á vexti þjóðarframleiðslu næstu misserin. Aukning fjármagns til háskólastigsins og nýjar fjármögnunarleiðir verði því meginviðfangsefni stefnumótunar fyrir æðri menntun á Íslandi. Þetta sé verulega viðkvæmt pólitískt viðfangsefni þar sem það feli líklega í sér að nauðsyn þess að víkja frá hinu rótgróna viðhorfi að háskólamenntun sé réttur allra sem þess óska og skilgreina hana þess í stað sem sérstakan ávinning þeirra sem hennar njóta. Hjá þessari umfjöllun verði ekki komist þar sem skólagjöld hafi þegar verið tekin upp við einkareknu háskólana. Kostnaðarþátttaka nemenda á háskólastigi sé þannig þegar fyrir hendi og svo sé einnig í öðrum hlutum menntakerfisins eins og t.d. í leikskólum og í fullorðinsfræðslu. Sérfræðingar OECD fara lofsamlegum orðum um námslánakerfið á Íslandi og hvernig það hefur stuðlað að jafnrétti til náms. Þeir segja þó mikilvægt að leggja áherslu á jafnræði nemenda, þ.e. að gæði þeirrar menntunar sem þeir njóta séu mikil og skili sér í tækifærum á vinnumarkaði. Þá er bent á að krafan um gæðatryggingu háskólastofnana hljóti að leiða af auknu sjálfstæði þeirra. Uppbygging gæðakerfa og þróun nýrra viðhorfa í gæðamálum er talið vera eitt meginviðfangsefni íslenska háskólakerfisins á næstunni eins og stefnt er að með nýjum lögum um háskóla. Skýrsla OECD er birt á vef menntamálaráðuneytisins. Menntamálaráðneytið efnir til málþings um skýrsluna þann 8. september nk. þar sem sérfræðingur OECD mun skýra niðurstöður hennar og fulltrúar menntamálaráðuneytis, háskóla, atvinnulífs og nemenda fjalla um þýðingu hennar fyrir stefnu stjórnvalda og starf háskóla.
Fréttir Innlent Skóla - og menntamál Stj.mál Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Erlent Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Innlent Fleiri fréttir Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Sjá meira