Reykjavík! með nýja breiðskífu 12. júlí 2006 15:30
Hljómsveitin Reykjavík!, sem er að mestu ættuð frá Vestfjörðum, gerði útgáfusamning við 12 Tóna ekki alls fyrir löngu og nú er fyrsta plata sveitarinnar loksins komin út en hennar hefur verðið beðið með mikilli eftirvæntingu. Platan sem ber heitið 'Glacial landscapes, religion, oppression and alcohol' var tekin upp í Gróðurhúsinu í samstarfi við hinn magnaða Valgeir Sigurðsson sem hefur m.a. unnið með Björk og Bonnie Prince Billy. Hljómsveitin Reykjavík! hefur vakið talsverða athygli í þau tæpu tvö ár sem hún hefur starfað, enda þykir sprengikraftur hennar á sviði magnaður (svo mjög að sumum þykir nóg um). Á stuttri starfsævi sveitarinnar hefur hún afrekað ýmislegt, m.a. að koma fram við góðan róm á Innipúkanum og tvennum Aldrei fór ég suður og Airwaves-hátíðum, farið í afdrifaríka ferð til Lundúna og Brighton á vegum hinnar þarlendu Xfm útvarpsstöðvar og vefritsins drownedinsound.com og svo eignaðist líka söngvarinn Bóas fallegan pilt, Dalí, ásamt henni Ingu sinni en hann er sá eini úr Reykjavík! sem hefur vakið athygli fyrir það. Tónlist Reykjavíkur! er kraftmikil, oftast melódísk, stundum óreiðukennd, einstaka sinnum afar falleg en alltaf skemmtleg. Nýbylgjuskotið rokk í anda Sonic Youth, Fugazi, Boston og SH Draums er eitthvað sem nær að lýsa þeirri breidd sem Reykjavík! býr yfir. Útgáfutónleikar Reykjavíkur! verða haldnir seinna í sumar. “Reykjavík kom mér mest á óvart, það er langt síðan ég sá hljómsveit sem hefur jafn gaman að því að vera hljómsveit, ótrúlega vel æfðir og þetta nýja stuff náði einhvernvegin að koma mér í svo góðan fíling að ég gat ekki hætt að tala vel um þá og hugsa um lögin. Takk fyrir mig Reykjavík, get ekki beðið eftir nýju plötunni.” (Mugison á http://www.mugison.is, eftir Aldrei fór ég suður 2006)
Lífið Menning Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira