Mikil öryggisgæsla í Vín vegna heimsóknar Bush 20. júní 2006 22:45 Bush Bandaríkjaforseta, og Lauru konu hans, heilsað við komuna til Austurríkis í kvöld. MYND/AP
Mikil öryggisgæsla verður í Vín í Austurríki í kvöld og á morgun en Bush Bandaríkjaforseti kom til borgarinnar í kvöld til fundar við fulltrúa Evrópusambandsins sem verður á morgun. Þrjú þúsund lögreglumenn verða að störfum í borginni næsta sólahring en búist er við mótmælum vegna heimsóknar forsetans. Það var síðast árið 1979 sem bandarískur forseti heimsótti Austurríki en þá undirrituðu Jimmy Carter og Leonid Brezhnev, Sovétleiðtogi, annað samkomulag ríkjanna um að koma í veg fyrir notkun kjarnorkuvopna, svokallað SALT II samkomulag. Fundur Bandaríkjaforseta og fulltrúar Evrópusambandsins er árlegur og haldinn nú í Vín þar sem Austurríkismenn eru í forsvari fyrir sambandið. Búist er við að Bandaríkjaforseti reyni að fá Evrópusambandaríki til að afleggja landbúnaðarstyrki þannig að viðræður um alþjóðlegan fríverslunarsamning geti haldið áfram. Einnig ætli hann að þrýsta á um að sambandsríkin veiti alla þá aðstoð sem þau hafi heitið við uppbyggingu í Írak og reyna að tryggja stuðning þeirra í kjarnorkudeilunni við Írana. Áætlað er að gert verði óformlegt samkomulag um að Evrópusambandið og Bandaríkin reyni saman að tryggja olíu- og gasbirgðir og komi á fót nefnd þar sem fjallað verði um loftslagsbreytingar. Búist er við mótmælum í Vín á meðan á heimsókn forsetans stendur og því verða þrjú þúsund lögreglumenn að störfum og sérhönnuð sprengjuleitartæki verði notuð til að leita á fólki. Ætla má að andstæðingar Íraksstríðsins láti í sér heyra og krefjist þess einnig að Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu verði lokað.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Sjá meira