Bíó og sjónvarp

Clooney í glæpum

Hjartaknúsarinn Clooney hefur tekið að sér hlutverk í tveimur glæpamyndum.
Hjartaknúsarinn Clooney hefur tekið að sér hlutverk í tveimur glæpamyndum.

Hjartaknúsarinn George Clooney hefur tekið að sér hlutverk í tveimur glæpamyndum sem verða frumsýndar árið 2008.

Fyrri myndin, sem nefnist White Jazz, er byggð á skáldsögu James Ellroy sem m.a. samdi L.A. Confidential. Þar leikur Clooney spilltan lögreglumann sem þarf að glíma við erfitt mál á sama tíma og verið er að rannsaka deild hans vegna spillingar.

Hin myndin nefnist Belmont Boys. Fjallar hún um sjö þjófa sem reyna að framkvæma stórt rán sem þeir tókst ekki að klára 30 árum áður.

Clooney hefur í nógu að snúast þangað til þessar myndir verða frumsýndar. Hann fer með aðalhlutverkið í næstu mynd bræðranna Joel og Ethan Cohen, Burn After Reading, auk þess sem hann fer með aðalhlutverkið og leikstýrir fótboltamyndinni Leatherheads.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.