Kemur til greina að endurskoða Edduverðlaunin 28. nóvember 2006 11:45 Segir málið vera til skoðunar og ýmsar breytingar komi til greina fyrir næstu hátíð.
Rýr hlutur kvenna á nýafstaðinni Eddu-verðlaunahátíð vakti mikla athygli og hefur nú leitt til þess að konur innan kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar sitja á rökstólum og íhuga sinn hlut. Fjórar konur hlutu verðlaun á hátíðinni þótt lítið hafi verið fjallað um viðurkenningu þeirra en þetta voru þær Lilja Pálmadóttir og Agnes Johansen en þær framleiddu Mýrina ásamt Baltasar Kormáki; Harpa Elísa Þórsdóttir, einn framleiðenda Stelpnanna, sem var kosinn skemmtiþáttur ársins og Nína Dögg Filipusdóttir fyrir handritið að Börnum ásamt leikhópnum Vesturporti. Þegar verðlaunahafarnir söfnuðust saman upp á svið var hins vegar engin kona, eingöngu karlar með styttu. Elísabet Ronaldsdóttir, formaður fagfélags kvenna í kvikmyndum og sjónvarpi, segir að hún finni vissulega fyrir óánægju meðal kvenna en þetta sýni jafnframt stöðu kvenna innan þessa geira. „Það hlýtur að vera takmark okkar allra að breyta þessu enda varla gott að saga þjóðarinnar skuli vera séð í gegnum auga annars kynsins,“ segir Elísabet sem bætir því að þegar hætt var að verðlauna leik fyrir bæði kyn hafi hlutur kvenna minnkað til muna. „Þetta er hins vegar samfélagsvandamál og endurspeglast víðar en í þessum geira,“ bætir hún við. Björn Brynjúlfur Björnsson, formaður íslensku kvikmynda-og sjónvarpsakademíunnar, tekur undir orð Elísabetar og segir hlut kvenna hafa verið nokkuð rýran á þessu ári. „Það er ekki gott ástand að við skulum vera með svona fáar konur og við þurfum að reyna að bregðast við þessu með einhverjum hætti,“ segir Björn sem áréttar þó að verið sé að fara yfir þessa hluti og umræðunni verði haldið lifandi fram að næstu hátíð. Þar til fyrir þremur árum var sá háttur hafður á að verðlaunað var fyrir kven- og karlhlutverk en horfið hefur verið frá því. Björn Brynjúlfur segir ástæðurnar tvær: annars vegar að reynt hafi verið að stytta beinu útsendinguna og að sum árin væru kvenhlutverk einfaldlega ekki jafn áberandi eða bitastæð. Í ár hafi hins vegar konur verið mjög áberandi í tveimur kvikmyndum, Börnum og Blóðböndum, og segir Björn það vel koma til greina að haga útnefningunum eftir árfari eða breyta þessu jafnvel alveg. „Þetta er þó hins vegar eins og í prófkjörum, það er ekki hægt að skikka fólk til að kjósa konur þótt allir vilji að það sé gert.“
Menning Mest lesið „Ég var mjög reiður út í heiminn í marga mánuði“ Lífið Stjórnarandstaðan hræðist ekkert meðan ríkisstjórnin þori ekki út úr húsi Lífið Einhleypan: Grænkeri sem hrífst af hugrekki Makamál Mamma mætti á frumsýningu Fjallsins Lífið Selur fantaflotta íbúð sem hann keypti af Birni Braga Lífið Berglind Festival, Hallgrímur Helga og Unnsteinn á sumarhryllingnum Lífið Aðstoðarmennirnir og ástin Lífið Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? Lífið samstarf „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Lífið samstarf Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Fleiri fréttir Jóhannes Haukur fer mikinn í Marvel stiklu Svaraði kallinu frá Ben Stiller Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Þau eru tilnefnd fyrir verstu kvikmyndagerðina Sjón og Eggers leiða hesta sína saman í nýjum varúlfahryllingi Deila um gervigreind skekur Hollywood í aðdraganda Óskarsins Sigurjón minnist David Lynch: „Jonni, við verðum að gera eitthvað fyrir Ísland“ Kvikmyndirnar sem beðið er eftir 2025 Embla og Timothée Chalamet glæsileg á dreglinum Krefur Disney um tíu milljarða dala Þakkar fleiru en Demi Moore fyrir langþráð metár Vestfirski hryllingstryllirinn frumsýndur vestanhafs Snerting skaut Deadpool ref fyrir rass 2024 Sjá meira