Bíó og sjónvarp

Leitað að íslenskri Janis Joplin

Leikrit um söngkonuna vinsælu verður frumsýnt á Nasa á næstunni.
Leikrit um söngkonuna vinsælu verður frumsýnt á Nasa á næstunni.

Leit stendur yfir að leikkonum til að fara með hlutverk bandarísku söngkonunnar Janis Joplin í nýju leikriti sem verður frumsýnt á Nasa um áramótin.

Leikritið nefnist 27 og fjallar um ævi Janis sem lést úr ofneyslu eiturlyfja árið 1970. Höfundur er Ólafur Haukur Símonarson og leikstjóri er Jóhann Sigurðarson.

Til stendur að tvær til þrjár söngkonur muni fara með hlutverk Janis og hefur Andrea Gylfadóttir verið nefnd sem ein af þeim. „Það eru nokkrar búnar að lesa handritið og hafa sýnt þessu gríðarlegan áhuga," segir Jóhann, sem tekur fram að enn eigi eftir að ráða í hlutverkin.

„Við fengum yfirlestur hjá forlaginu Nordiska Theater Starck-forlaget og fengum svar um að þetta væri besta „mono-drama" sem þeir hafa lesið í mörg ár," bætir hann við. „Leikritið heitir 27 og byggir það á því að þau dóu öll 27 ára gömul; Janis, Morrison og Hendrix. Þetta er mikil örlagatala."

Búast má við skemmtilegu leikriti á Nasa enda eru mörg laga Janis orðin sígild, þar á meðal Mercedes Benz, Me and Bobby McGee, Summertime og Cry Baby.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.