Saxbygg kaupir í Steni í Noregi Fjárfestingin býður upp á mikla markaðssókn. 20. október 2006 06:45
Saxbygg hefur eignast kjölfestuhlut í eignarhaldsfélagi utan um Steni sem framleiðir húsaklæðningar fyrir byggingariðnaðinn í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada. Félagið er með sterka stöðu á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum, einkum á heimamarkaði í Noregi þar sem fjörutíu prósent sölunnar verða til. Björn Ingi Sveinsson, framkvæmdastjóri Saxbyggs, telur að félagið komi inn á mjög heppilegum tíma nú þegar sér fyrir endann á endurskipulagningu Steni sem staðið hefur yfir í um tvö ár. Steni býður upp á talsverða stækkunarmöguleika en framleiðslugetan er ekki nýtt nema að sextíu prósentum. Það er hægt að fara í töluverða markaðssókn með félagið og afurðir þess án þess að taka inn miklar fjárfestingar. Ásamt Saxbygg koma belgískir, finnskir og norskir fjárfestar að kaupunum sem eru skuldsett og fjármögnuð af Glitni. Saxbygg er tveggja ára gamalt fjárfestingafélag sem er fyrst og fremst í fjárfestingum í fasteignum og byggingartengdum hlutum erlendis. Félagið er í jafnri eigu Saxhóls, Nóatúnsfjölskyldunnar og Byggingarfélags Gylfa og Gunnars.
Viðskipti Mest lesið Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira