Vilja í velmegunarlið með Norðurlöndum 24. ágúst 2006 06:00 Alex Salmond Leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, SNP, stefnir að sjálfstæðu Skotlandi. MYND/nordicphotos/gettyimages
Alex Salmond, leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, SNP, vill að Skotland verði sjálfstætt ríki sem yrði hlekkur í „velmegunarboga“ með Norðurlöndunum, frá Íslandi til Finnlands. Frá þessu er greint í blaðinu Scotland on Sunday. Salmond stefnir að því að ná kjöri til forsætisráðherra skoska heimastjórnarþingsins, en kosningar fara fram til þess á næsta ári. Komist hann í aðstöðu til þess vill Salmond fá valinn hóp sérfræðiráðgjafa í efnahagsmálum til að leiðbeina sér hvernig best sé að haga málum til að markmiðum SNP verði náð: að árlegur hagvöxtur verði um 4 prósent, íbúum Skotlands fjölgi um 3 prósent á næstu tíu árum, og að skoskt efnahagslíf verði í hópi þeirra fimmtán samkeppnishæfustu í heimi innan fimmtán ára. Talsmenn SNP segja að sjálfstætt Skotland, með full yfirráð yfir olíulindunum í lögsögu þess, myndi strax og sjálfstæðið tæki gildi verða ríkasti hluti Bretlandseyja og stökkva upp í áttunda sæti yfir Evrópuþjóðir með hæstu meðaltekjur á mann, úr átjánda sæti. Ísland er í því fimmta.
Erlent Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Innlent Óttast afleiðingarnar ef kennarar fá mun meiri hækkun en aðrir Innlent Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Grasrót kennara lætur til sín taka á samfélagsmiðlum Innlent Áslaug Arna og Guðrún tókust á í Pallborðinu Innlent Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs Innlent Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Fleiri fréttir Franskur skurðlæknir játar svívirðileg brot á börnum Sakaður um að þiggja mútur fyrir að tala máli Rússa á Evrópuþinginu Væntanlegur kanslari segir Evrópu þurfa sjálfstæði frá Bandaríkjunum Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Sjá meira