Grunnt á því góða milli fylkinga 22. ágúst 2006 06:00 Spenna Stuðningsmenn Josephs Kabila, starfandi forseta sem hér sést á kjörstað, og keppinauts hans Jean-Pierre Bemba hafa skipst á skotum í Kinshasa síðustu daga. MYND/AP
Skothríð upphófst í Kinshasa, höfuðborg Kongó, annan daginn í röð í gær, en spenna er mikil í borginni vegna nýafstaðinna forsetakosninga. Svo virtist sem skothríðin hefði átt sér stað nærri heimili fyrrverandi uppreisnarleiðtoga sem keppti við Joseph Kabila, sitjandi forseta, um embættið í kosningunum. Samkvæmt úrslitum talningar, sem birt voru á sunnudag, fékk Kabila um 45 prósent atkvæða og þar með ekki nóg til að tryggja sér völdin strax í fyrri umferð kosninganna, en þær fóru fram þann 30. júlí. Skæðasti keppinautur hans, fyrrverandi uppreisnarleiðtoginn Jean-Pierre Bemba, hlaut fimmtung atkvæða. Kabila er forseti og Bemba varaforseti í bráðabirgðastjórn landsins. Afgangur hinna tæplega sautján milljóna atkvæða sem talin voru dreifðust á tugi annarra frambjóðenda. Að sögn kjörstjórnar var kjörsókn um 70 prósent í þessum fyrstu lýðræðislegu kosningum sem fram hafa farið um langt árabil í þessu stríðshrjáða risalandi. Síðari umferð forsetakosninganna fer fram þann 29. október, með aðstoð friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandsins.
Erlent Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira