Sport

Wigan lagði Bolton

Nýliðar Wigan halda áfram að koma á óvart í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en þeir unni 2-1 sigur á Bolton í deildinni í dag. Henri Camara og Lee McCulloch komu Wigan í 2-0 í fyrri hluta síðari hálfleiks áður en Radhi Jaidi minnkaði muninn á 68. mínútu. Wigan er í 7. sæti deildarinnar með 13 stig, aðeins 2 stigum frá Charlton sem er í 2. sæti. Bolton er einu stigi á undan Wigan í 5. sæti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×