Sá veldur sem á heldur 16. september 2005 00:01 Borgarstjórnarkosningar - Þorleifur Gunnlaugsson Nokkrir Samfylkingarmenn og stuðningsmenn þeirra hafa verið iðnir við að gera því skóna að Sjálfstæðisflokkurinn nái völdum í Reykjavík í næstu borgarstjórnarkosningum. Þannig skrifar Heimir Már Pétursson til dæmis grein í Fréttablaðið 25. ágúst. Þar sveiflast hann á milli þess að ætla að mynda breiðfylkingu R-listafólks yfir í að segja að "ef grafararnir vinstra megin línunnar ná undirtökunum með gamaldags Steingríms J-allaballatuggu um að "vinna saman eftir kosningar " mun ég kjósa Sjálfstæðisflokkinn" . Sem sagt, ef ekki næst samstaða um R-listann er samstarf félagshyggjuaflanna í Reykjavík fyrir bí. Er það virkilega svo að nú megi menn ekki lengur tala um að vinna saman eftir kosningar? Þessu er ég algerlega ósammála. Ég vil að VG starfi með félagshyggjuöflunum í Reykjavík. Greinilegt er að mörgum var það tilfinningamál að upp úr R-listasamstarfinu skyldi slitna og væri sennilega skynsamlegt, að áhugamenn um áframhaldandi samstarf um stjórn Reykjavíkurborgar, gerist ekki mjög dómharðir í garð samstarfsaðila sinna þótt sitthvað hafi verið látið fjúka í hita leiksins. Það þýðir þó ekki að þegja eigi um efnislegan ágreining. Að sjálfsögðu á að ræða hann. Það getur aldrei verið slæmt að færa rök fyrir máli sínu. Ég neita því ekki að mér þótti nokkurri furðu sæta að heyra að nú væri það talið ólýðræðislegt að stjórnmálaflokkarnir, sem aðild eiga að Reykjavíkurlistanum, færu með hans mál; flokkarnir (og þá helst VG) voru kallaðir klíkur - talað var um að fámennir hópar (þ.e. félagsfundir VG) tækju ákvörðun fyrir hönd Reykvíkinga; nú riði á, sögðu einkum Samfylkingarmenn, að borgarfulltrúar R-listans og þá ekki síst, borgarstjórinn, leiðtoginn, yrði valinn í opnu prófkjöri. Við í VG viljum vissulega val á fulltrúum en við höfum sameinast um að leyfa ekki auglýsingar og viljum þar með forðast peningaaustur og lýðskrum. Þá leggjum við á það áherslu að lýðræði eigi að vera virkt allt kjörtímabilið, ekki einvörðungu þau sekúndubrot sem kjörseðillinn, hvort srm það er prófkjörseðillinn eða bæjarstjórnarkjörseðillinn er er að detta niður í kjörkassann. Í fljótu bragði getur prófkjör og leiðtogaval virst lýðræðislegt en hæglega getur það þó snúist upp í andhverfu sína. Í fyrsta lagi eru prófkjör iðulega svo kostnaðarsöm að það er einvörðungu á færi atvinnupólitíkusa og þeirra sem hafa góð efni að taka þátt. Varla telst það lýðræðislegt. Í öðru lagi er hætt við því að það gerist að þeir sem kjörnir eru til forystu, "leiðtogarnir" telji sig lausa allra mála fram að næstu kosningum. Vissluega má segja að þá komi að skuldadögum. Að mínu mati eiga stjórnmálamenn hins vegar að finna fyrir lýðræðislegu aðhaldi allt kjörtímabilið. Aðeins nánar að þessu. R-listinn er ekki félag, hann er ekki með félagatal, stjórn né heldur hann fundi á milli kosninga. Almennir stuðningsmenn hans hafa enga aðkomu að störfum hans. Samkvæmt uppskrift Samfylkingarinnar væru borgarfulltrúar, kjörnir í opnu prófkjöri, einráðir og "ósnertanlegir" á milli kosninga. Borgarstjóri kjörin í opnu prófkjöri gæti þessvegna setið í óþökk meirihlutans. Í gagnrýni sinni á VGR vilja andstæðingar okkar meina að félögunum sé stjórnað eins og strengjabrúðum af fámennri flokkseigendaklíku. Sennilega gengur þeim sem þessu halda fram ekkert illt til. Þetta er einfaldlega það sem þeir eru sjálfir vanir úr eigin flokki. Einn mikilvægasti þáttur einræðislegra vinnubragða er að stjórna því sem tekið er á dagskrá. Ég tók til að mynda eftir því að þegar "Þórólfsmálið" var uppi hélt Samfylkingin einn félagsfund. Hann var að mig minnir um skipulagsmál. Á sama tíma logaði allt í fundahöldum hjá VGR. Það sama hefur verið upp á teningnum í hinum ýmsu málum, og hefur það gilt bæði um mál þar sem fólk hefur viljað koma gagnrýni á framfæri eða hvetja fulltrúa sína til að gera enn betur. Allt frá, málefnum húsnæðislausra, Tjarnarkjallaranum til sölunnar á hlutnum í Landsvirkjun. Hafi verið vilji til að taka mál á dagsskrá, hefur það verið gert og málin afgreidd á lýðræðislegan hátt. Alltaf hafa það verið félagarnir í Reykjavík, iðulega á mjög fjölmennum fundum, sem tóku af skarið. Þetta gilti einnig um viðræður um framhald R-listans nú í sumar. Lýðræðislega kjörin stjórn skipaði 3ja manna viðræðnefnd (2 úr stjórn og einn frá stjórn ungliða) og var sú skipan síðan staðfest af félagsfundi. Viðræðunefnd VGR hafði stöðugt samráð við stjórn, samráðsfundi og félagsfundi og að lokum var málið afgreitt af félögunum með yfirgnæfandi meirihluta athvæða. Ég held að ef menn skoða þessi mál af sanngirni og yfirvegun hljóti menn að sjá að það sem fyrir okkur í VG vakir, er að efla lýðræðislegt aðhald í borginni. Ég hef orðið var við það að kjósendur í Reykjavík gera sér upp til hópa grein fyrir því að VG vill starfa á opinn og lýðræðislegan hátt. Í þjóðarpúlsi Gallúp sem tekin er á lokasspretti R-listaviðræðnanna mælist VG með 19% fylgi. Í Reykjavík verður enginn félagshyggjumeirihluti án VG. Slíkan meirihluta vill Vinstrihreyfingin grænt framboð hins vegar. Þessu takmarki getum við náð ef við leggjum okkur fram um það. Nú er mál að linni ásökunum, úrtölum og bölbænum. Það er staðreynd að flokkarnir bjóða fram hver um sig næsta vor. Þetta finnst sumum gott, öðrum ekki. Það á við um fólk í öllum þeim flokkum sem hlut eiga að máli. En þetta er staðreynd sem menn þurfa að horfast í augu við. Með því að halda því fram að bjóði flokkarnir fram í sitt hvoru lagi séu þeir að afhenda Sjálfstæðisflokknum völdin er verið að grafa undan möguleikum okkar og afhenda Íhaldinu borgina. Það er ábyrgðarhlutur sem raunverulegir félagshyggjumenn geta ekki leyft sér. Félagshyggjuöflin í Reykjavík mega hvorki leyfa sér uppgjöf né daður við Íhaldið. Staðreyndin er sú að með því að snúa bökum saman höfum við möguleika á að halda borginni. Allt er nú undir okkur sjálfum komið. Sá veldur sem á heldur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Skoðun Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen Skoðun Skoðun Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar