Sport

Byrjunarlið Íslands gegn Búlgaríu

Nú rétt í þessu tilkynntu Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hvaða leikmenn yrðu í byrjunarliðinu í leiknum við Búlgaríu í undankeppni HM, sem fram fer í Búlgaríu klukkan 16 síðdegis. Markvörður er Árni Gautur Arason. Bakverðir eru Indriði Sigurðsson og Kristján Örn Sigurðsson. Miðverðir eru þeir Auðunn Helgason og Hermann Hreiðarsson. Á miðjunni leika þeir Stefán Gíslason og Brynjar Björn Gunnarsson, en Eiður Smári Guðjohnsen leikur fyrir framan þá. Á vængjunum leika svo Kári Árnason og Grétar Rafn Steinsson og Heiðar Helguson verður einn í framlínunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×