Bush mærir Letta 7. maí 2005 00:01
George Bush, forseti Bandaríkjanna, fagnar þeim skrefum sem yfirvöld í Lettlandi hafa stigið í átt til frelsis og lýðræðis eftir að landið varð frjálst frá Sovétríkjunum. Bush kom í opinbera heimsókn til Lettlands í gær og markar það upphaf heimsóknar hans til Evrópu þar sem hann tekur þátt í hátíðarhöldum í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá lokum Síðari heimstyrjaldar. Bush situr meðal annars ráðstefnu Eystrasaltsríkjanna Eistlands, Lettlands og Litháens, sem haldin er í Lettlandi, um lýðræðisþróun undanfarinn áratug. Ríkin þrjú gengu til liðs við Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandi í fyrra eftir að hafa öðlast sjálfstæði frá Sovétríkjunum sálugu árið 1991. Bandaríkjaforseti sagði við Vairu Vike-Freiberga, forseta Lettlands, að sér þætti það afar ánægjulegt að koma til lands sem virti frelsið eins mikið og raun bæri vitni. Gríðarleg öryggisgæsla er í Ríga, höfuðborg Lettlands, vegna heimsóknar Bandaríkjaforseta en heimsóknin hefur farið töluvert fyrir brjóstið á stjórnvöldum í Moskvu vegna ummæla Bush um að Sovétríkin hafi hernumið Eystrasaltsríkin í fimm áratugi, eftir ósigur Hitlers.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Viðreisn á flugi í nýrri Maskínukönnun Innlent Gert að greiða leigu fyrir afnot af „Hafnarfjarðarhreysinu“ Innlent Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Erlent Vinnan sé seld langt undir kostnaðarverði Innlent Skrifstofustjórinn fær ekki milljónirnar 24 Innlent Grunaður um að nauðga og brjóta ítrekað á barnungri stúlku Innlent Inga muni varpa efnahagslegum gjöreyðingarvopnum Innlent Óþarfi að skera úr um hvort læknir hafi gerst sekur um gáleysi Innlent Ekki vanhæfur til að rannsaka banaslysið Innlent Fleiri fréttir Vill taka vantraustið fyrir strax Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Ríkissjórn Scholz er sprungin Óskaði Trump til hamingju og ítrekaði friðsamleg valdaskipti Ríkisstjórn Scholz á barmi þess að springa Harris búin að hringja í Trump og undirbýr ávarp Óttast verulegt bakslag á mörgum vígstöðvum Baráttan um Bandaríkin: Donald Trump verður forseti, og hvað svo? Þjóðarleiðtogar kasta kveðju á Trump Trump lýsir yfir sigri: Guð hafi bjargað honum svo hann gæti bjargað Ameríku Andstæðingar þungunarrofs unnu í Flórída Donald Trump forseti á nýjan leik Mikill fögnuður hjá Trump-liðum Repúblikanar ná meirihluta í öldungadeildinni Gætum þurft að bíða í nokkra daga ef ekkert óvænt gerist Netanjahú rekur varnarmálaráðherrann Spurning hvort hræðsluáróður eða jákvæðni nái betur til kjósenda Baráttan um Bandaríkin: Hvað gerist eiginlega í nótt? Mikill viðbúnaður vegna ásakana um svindl í lykilsýslu Arizona Dæmdur í fangelsi fyrir kóranbrennur Vaktin: Forsetakosningar í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu Útsendarar GRU sagðir hafa sent eldsprengjur með flugvélum Sigurvegarar í keppni Musks ekki valdir af handahófi Pennsylvanía nauðsynleg til að tryggja sigur Réttað yfir átta vegna afhöfðunar kennara í París Rauð veðurviðvörun og 80 flugferðum aflýst eða frestað „Já, maður! Að sjálfsögðu vinnur hann þetta!“ Evrópusamstarf verður að Evrópuvandamáli Forseti Moldóvu hélt velli þrátt fyrir ásakanir um rússnesk afskipti Sjá meira