Innlent

Mikill eldur í húsi við Mýrargötu

Allt tiltækt slökkvilið var kvatt að Mýrargötu 26 skömmu fyrir miðnætti. Tilkynnt var um töluverðan eld og stóðu logar út um glugga þegar slökkvilið kom á staðinn. Ein íbúð var í húsinu en ekki var vitað hvort einhver var í húsinu. Reykkafarar fóru inn í húsið og leituðu að fólki sem óttast var að væri þar inni. Nú fyrir stundu hafði slökkvilið náð tökum á eldinum. Skammt er síðan talsverður eldur kom upp í þessu sama húsi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×