Segja Bónus hafa bætt kjörin 19. mars 2005 00:01
Hólmarar segja lífskjör í Stykkishólmi hafa batnað verulega með opnun Bónusverslunar í haust. Viðskiptavinir koma af öllu Snæfellsnesi og einnig frá Vestfjörðum og segir bæjarstjórinn það styrkja um leið aðra starfsemi í bænum. Bónus opnaði verslun í Stykkishólmi í október og kom hún í staðinn fyrir verslun 10-11 sem var áður í sama húsi. Kannanir hafa sýnt nærri 40 prósenta mun á verði matvöru milli þessara verslana og er því skiljanlegt að heimamenn fagni breytingunni. Sigurður Kristjánsson, sem var að versla í Bónus þegar fréttastofa var á svæðinu um daginn, segir að tilkoma verslunarinnar hafi gífurleg áhrif og Jóhannes í Bónusi eigi hrós skilið fyrir að hafa opnað búðina. Gerður Sigurðardóttir, sem einnig er viðskiptavinur, segist aðspurð finna mikinn mun á heimilisútgjöldum. Fólk kemur langt að úr öðrum byggðarlögum til að versla. Egill Egilsson verslunarstjóri segir að fólk komi af öllu Snæfellsnesinu og sömuleiðis frá Vestfjörðum með ferjunni Baldri. Stykkishólmur er rótgróinn verslunarstaður. Þar versluðu útlendir kaupmenn fyrr á öldum enda var þarna miðstöð verslunar við Breiðafjörð. Ljóst er að þessi nýja búð styrkir byggðarlagið verulega. Óli Jón Gunnarsson bæjarstjóri segir að það sé alveg ljóst að það hafi verið umtalsverð kjarabót fyrir íbúana að fá Bónus í bæinn og það hafi styrkt aðra starfsemi í leiðinni. Hann finni fyrir því hversu mikilvægt það sé að verslunin sé svo öflug sem raun ber vitni og kjörin góð. Bæjarstjórinn fagnar því að Hólmurinn skuli eflast um leið sem verslunarbær. Fólk komi annars staðar frá og nýti sér það sem í boði sé og það hafi allt sín keðjuverkandi áhrif.
Fjármál Innlent Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira