Gleðitár runnu í Palestínu 21. febrúar 2005 00:01
Gleðitár runnu um gervalla Palestínu í dag þegar fimm hundruð palestínskir fangar sneru aftur til síns heima úr ísraelskum fangelsum. Lausn fanganna er hluti af nýsamþykktu vopnahléi Ísraela og Palestínumanna. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út þegar föngunum var sleppt í dag á landamærastöðvum bæði á Vesturbakkanum og Gaza. Þetta var tilfinningaþrungin stund enda voru margir að sjá fjölskyldur sínar á nýjan leik eftir áralanga fangelsisvist. Alls sitja um 8000 palestínskir karlmenn í ísraelskum fangelsum og lausn þeirra er orðið að einum umdeildasta ásteitingarsteininum á milli fylkinganna tveggja. Í kjölfar vopnahléssamkomulagsins í byrjun mánaðarins samþykkti Ísraelsstjórn að sleppa um 900 föngum lausum sem flestir höfðu þegar setið að minnsta kosti tvo þriðju hluta fangelsisdóms síns. Því verður fjögur hundruð til viðbótar við þessa fimm hundruð sem fengu frelsi sitt í dag sleppt á næstu þremur mánuðum. Enn sem komið er neitar Ísraelsstjórn hins vegar að verða við kröfum um að láta fleiri Palestínumenn lausa úr haldi og alls ekki þá sem hafa verið viðriðnir árásir á ísraelska þegna.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Eldar loga í LA og neyðarástandi lýst yfir Erlent Ibrahim hafi horfið sjónum bílstjórans í fáeinar sekúndur Innlent Íbúar hafi óttast að svona gæti farið Innlent Gerði ráð fyrir að verða formaður þingflokksins Innlent Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn Innlent Fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir bruna á Sævarhöfða Innlent Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura Innlent Ummælin um Grænland risastórt mál sem ætti að taka alvarlega Innlent Belgar varaðir við því að borða jólatrén Erlent Ætlar að hitta kónginn í dag Erlent Fleiri fréttir Leita nýrra leiða til að sækja sýni til Mars Kyrrsetja skuggaskipið vegna slæms ástands Ætlar að hitta kónginn í dag Belgar varaðir við því að borða jólatrén Dregið verulega úr ritskoðun á Facebook og Instagram Eldar loga í LA og neyðarástandi lýst yfir Útilokar ekki að beita hervaldi til að ná Grænlandi Ummæli um vanþakklæti Afríkubúa valda reiði Danir ekki í rónni með Grænlandsheimsókn Trumps yngri Le Pen látinn Símar framhaldskólanema læstir inni í skáp Trump-liðar vilja stöðva birtingu skýrslu Smiths Aldrei færri fangar í Guantánamo-fangelsinu Enn segjast menn vongóðir um vopnahlé á Gasa Tugir látnir eftir stóran skjálfta í Tíbet Trump yngri á leið til Grænlands Trudeau segir af sér Byrjuðu strax að endurskrifa sögu árásarinnar Minkarækt hafin að nýju eftir að milljónum var lógað Hafa tekið nokkur þorp í Kúrsk Sjötta fórnarlamb árásarinnar í Magdeburg látið Afsögn Trudeau sögð yfirvofandi Biðtíminn í umferðinni hvergi lengri en í Lundúnum Sagður hafa þegið töskur fullar fjár frá Gaddafi Kuldaboli bítur Bandaríkjamenn Musk reynir að hafa áhrif víða: „Ekki fóðra tröllið“ Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir The Vivienne er látin Trump ósáttur að flaggað verði í hálfa við innsetninguna Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu Sjá meira