Lige som den Bjorgolfur, altso! 17. nóvember 2005 06:00 Á nýliðnu þingi Norðurlandaráðs voru samþykktar grundvallarbreytingar á norrænu menningarsamstarfi. Ákveðið var að leggja niður á einu bretti miðstöðvar á sviði tónlistar, bókmennta, sviðslista og myndlistar sem um árabil hafa gegnt margvíslegum hlutverkum í norrænu menningarlífi. Þær hafa m.a. verið tengiliður norrænna listamanna og samstarfsvettvangur þeirra, auk þess að halda utan um stóran hluta norræna sjóðakerfisins. Þær hafa hver með sínum hætti verið nokkurs konar útverðir norræns menningarsamstarfs þar sem listamenn og fagmenn innan listheimsins geta treyst því að tungumál þeirra skiljist og jafnframt að unnið sé út frá þeim veruleika sem menningin er sprottin úr. Ekki út frá tilskipunum að ofan heldur lífrænu samspili menningar og samfélags á hverjum tíma. Vissulega hefur misvel tekist til í starfinu hingað til og margt sem þarfnast endurskipulagningar eigi miðstöðvarnar að standa undir nafni. En hugmyndin er góð og hreint engin tilviljun: Með því að stofna slíkar miðstöðvar og setja þær í hendur fagmanna úr viðkomandi listgreinum hvarf fyrirgreiðslupólitík nánast úr sögunni og hægt var að byggja upp samfellu í starfi óháð duttlungum ráðamanna. Þar með var sömuleiðis hægt að byggja upp marktækan gagnabanka og aðgengileg tengslanet, byggð á virkum samskiptum og þeim veruleika sem menningin er samofin. Það hefði því verið ögrandi og jafnframt sjálfsagt verkefni fyrir Norrænu ráðherranefndina að endurskipuleggja þessar miðstöðvar í þeim tilgangi að gera góða hugmynd ennþá betri. Nýta það sem vel var gert í samhengi við nýjar vinnuaðferðir og breytt viðhorf. Sýndarsamvinna Undirritaður hefur, ásamt fulltrúum norrænna listbandalaga, fylgst með þessu ferli undanfarna mánuði, eða allt frá því Per Voetman, talsmaður nefndarinnar sem skipuð var til að endurskoða norrænt menningarsamstarf, kallaði okkur til fundar við sig í Kaupmannahöfn í júní síðastliðnum. Áður hafði hann heimsótt Norðurlöndin öll, kynnt tillögur nefndarinnar og kallað eftir ábendingum fagaðila. Og það vantaði ekki ábendingarnar. Á fundinum í Menningarráðuneytinu í Kaupmannahöfn var komið inn á ótal gagnrýniverða þætti í tillögunum. Ekki síst hvernig hið svokalla "armslengdar" prinsipp, sem gengur út á að stjórnmálamenn séu ekki með puttana í faglegum úthlutunum, var þar þverbrotið. Í framhaldi af fundinum var skilað inn endanlegri greinargerð sem undirritað var af tugum fagfélaga og regnhlífasamtaka listamanna á Norðurlöndunum, þar sem allt kapp var lagt á málefnalega gagnrýni og raunhæfar tillögur til úrbóta svo hér yrði ekki til enn eitt menningarslysið vegna vanhugsaðra aðgerða yfirvalda. Það er skemmst frá því að segja að þegar málið var lagt fyrir í sinni endanlegu mynd á þingi Norðurlandaráðs á dögunum, hafði ekkert breyst frá upphaflegum tillögum. Ekki hafði verið gerð ein einasta breyting byggð á ábendingum, gagnrýni og tillögum þeirra sem best til þekkja. Það hafði m.ö.o. ekki verið tekið tillit til eins einasta orðs af því sem norrænir fagmenn höfðu um málið að segja. Í stað þess að byggja upp var ákveðið að leggja niður. Það var, líkt og margt annað um þessar mundir, gert í nafni skilvirkni og einföldunar. Einföldun er það svo sannarlega, því samkvæmt nýju fyrirkomulagi mun einn sameiginlegur sjóður koma í stað allra miðstöðva og í hann munu listamenn og menningarstofnanir geta sótt, hafandi fyllt út viðeigandi eyðublöð. Úthlutanir verða í höndum stjórnmála- og embættismanna í sýndarsamvinnu við fagmenn í listum sem nýttir verða til friðþægingar eftir hentugleikum. Allt sem heitir upplýsingamiðlun um norræna menningu, gagnabankar, tengslanet og samstarfsvettvangur mun jafnframt heyra sögunni til og uppsafnaðri þekkingu gefið langt nef. Aftur til fortíðar Með hreinni og klárri valdbeitingu hafa stjórnmálamenn hér með tryggt sér beinan aðgang að öllu því fjármagni sem veitt verður til norrænna verkefna á sviði tónlistar, bókmennta, sviðslista og myndlistar um ókomna tíð. Í því felst hin raunverulega "hagræðing". Í stað þess að láta fagfólk og einstaklinga með reynslu af listsköpun í samtímanum um að vega og meta hvar fé nýtist best hverju sinni, hafa pólitíkusar ákveðið að taka málin í sínar hendur og hverfa þannig, ásamt embættismönnum sínum, áratugi aftur í tímann. Til fyrirkomulags þar sem listamenn og listnjótendur búa við geðþóttaákvarðanir einstaklinga sem virðast upplifa lista- og menningarstarfsemi sem illa nauðsyn og í besta falli sem nothæft kokteilboð í hinum eilífa kosningaundirbúningi sem líf þeirra er. Sú aðferð sem hér er beitt til að tryggja valdhöfum "rétta" útkomu, er á góðri leið með að yfirtaka alla stjórnsýslu. Stjórnmála- og embættismenn taka æ oftar einhliða ákvarðanir í málum sem þeir hafa litla sem enga reynslu af en setja síðan á svið eitthvert sjónarspil sem kennt er við samráð. Listamenn hafa ítrekað fengið að kynnst þessum leikaraskap að undanförnu og er skemmst að minnast forkastanlegra vinnubragða í kringum ráðstefnuhöllina sem kennd er við Tónlistarhús og nú síðast lokun Listdansskóla Íslands þar sem menn eru í báðum tilvikum að horfa upp á meingallaðar framkvæmdir. Þá fyrri litaða af sýndarsamráði við tónlistarmenn, þá seinni af yfirgangi ráðherra og síðan innantómum loforðum um samráð - eftir á. Smákóngar í ráðuneytum Blekkingarleikur stjórnmála- og embættismanna í nafni hins svokallaða lýðræðis sem heita á ríkjandi á Norðurlöndunum er orðinn ákaflega leiðgjarn svo ekki sé meira sagt. Það heyrir orðið til fágætra undantekninga að valdhafar telji sig í þjónustu þjóðar og hlusti eftir því sem þar er að finna, hvort sem er í formi málefnalegrar gagnrýni eða faglegra ábendinga þeirra sem best þekkja til. Það er líkast því að sú bylting sem orðið hefur í valdahlutföllum á sviði efnahagsmála á undanförnum árum hafi vegið svo að áhrifamætti stjórnmálamanna að þeir leiti nú allra mögulegra og ómögulegra leiða til að gera sig gildandi. Þetta nýjasta útspil; að opna fyrir bein afskipti yfirvalda af norrænni sköpun og liststarfsemi, ætti að gefa smákóngunum innan ráðuneytanna auknar vonir. Vísast kominn tími fyrir þá að setja teinóttu fötin í hreinsun, því framundan eru ótal flugeldasýningar og opnunarhátíðir stjórnskipaðra uppákoma sem menningardindlar stjórnsýslunnar geta baðað sig í sem persónulegir velgjörðarmenn og hálfguðir. Rétt eins og þeir væru sjálfur hundraðkallinn Björgólfur í ham. Verði þeim að góðu. Höfundur er forseti Bandalags íslenskra listamanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Skoðun Mest lesið Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo Skoðun Fíllinn í stofunni Eldur Smári Kristinsson Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson Skoðun Skoðun Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar Skoðun Gervigreind í ráðningum - stuðningur eða staðgengill? Helga Jóhanna Oddsdóttir skrifar Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Hraðtíska kallar á aðgerðir Norðurlanda Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í stofunni Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Þegar orðaslagurinn stríðir við þjóðarsálina Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Gervigreind er ekki sjálfkrafa góð eða slæm. Hún er alin upp Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson skrifar Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson skrifar Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar
Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar
Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar