Skoðun

Þegar stórt er spurt...

Fyrir um mánuði sendi Röskva öllum alþingismönnum bréf þar sem sýn Röskvu á háskólann og málefni stúdenta var lýst. Auk þess voru lagðar fyrir þingmennina fimm spurningar. Þeir voru spurðir um afstöðu þeirra til skólagjalda, fjöldatakmarkana, námslána, stúdentakjara á heilbrigðisþjónustu og hvort þeir hyggðjast beita sér fyrir því að flokkur þeirra móti sér heildstæða stefnu um fyrrnefnd atriði.

 Skemmst er frá því að segja að aðeins einn þingmaður svaraði um hæl, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, og var svar hennar birt á heimasíðu Röskvu 13. október síðastliðinn. Þar vísar Ingibjörg á mennta- og menningarmálahóp Samfylkingarinnar og biður okkur að leita til þeirra með einstök málefni en bætir við að jafnframt komi það "þó auðvitað ekki í veg fyrir að einstakir þingmenn svari ykkur ef þeim sýnist svo".

Eftir að hafa ítrekað gengið eftir svörum og boðið alþingismönnum til fundar bárust loks svör frá tveimur stjórnarandstöðuflokkanna, Samfylkingu og vinstri grænum, fyrr í vikunni. Þingmenn hinna flokkanna hafa enn ekki svarað spurningum Röskvu. Spurningarnar fjalla þó einvörðungu um málefni sem skipta stúdenta miklu máli. Má ótrúlegt telja að þingmenn hafi ekki velt þeim fyrir sér og sjái ekki ­ástæðu til þess að svara þeim, jafnvel þó að á eftir því sé gengið.

Tilgangur Röskvu með bréfsendingunni til þingmanna var ekki að kynna sér stefnur flokkanna í menntamálum. Þær þekkjum við vel og auðvelt er að nálgast slíkar almennar upplýsingar á heimasíðum flokkanna. Við vildum hins vegar vita hvort og hvernig þingmennirnir hugsa almennt um Háskóla íslands og hvort þeir hafi myndað sér skoðun á því hvernig eigi að taka á málefnum hans. Það dugir ekki að leggja til fína menntastefnu ef enginn áhugi er á að framkvæma hana. Eru stefnurnar málamiðlunarsúpa matreidd fyrir hvern sem vill smakka – eða er hún vel ígrunduð á grunni þeirrar hugmyndafræði sem flokksmenn og þingmenn standa fyrir, með stúdenta og framtíðarsýn að leiðarljósi?

 Stór meirihluti þingmanna Alþingis er útskrifaður frá Háskóla Íslands. Sumir eru þakklátir fyrir að hafa fengið þetta einstaka tækifæri til menntunar, aðrir segja að eftir útskrift horfi hlutirnir öðruvísi við og skólagjöld séu orðin fýsilegri. Hvort heldur sem er telur Röskva að alþingismenn eigi að sýna þjóðskólanum og stúdentum sem þar nema áhuga og tilskylda virðingu með því að gera grein fyrir afstöðu sinni. ­Röskva stendur fyrir hádegisfundi í dag þar sem þingmenn munu sitja fyrir svörum um spurningar bréfsins.Fundurinn fer fram í Lögbergi og hefst klukkan 12.20.

Höfundur er formaður Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við HÍ.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×