Til hvers er verið að funda? 26. október 2004 00:01 Nú síðdegis munu deiluaðilar í kennaradeilunni hittast hjá ríkissáttasemjara. Tveimur tímum síðar er boðaður samningafundur. Margir foreldrar og aðilar þessarar kjaradeilu hafa eflaust andað léttara eftir þessar fréttir í gær. Þegar slitnaði upp úr samningaviðræðum á fimmtudaginn var annar fundur ekki boðaður fyrr en eftir tvær vikur og á meðan ekki er fundað eru litlar líkur á að semjist. Þessar fregnir bárust eftir að deiluaðilar höfðu fundað með fulltrúum ríkisstjórnarinnar sitt í hvoru lagi, skömmu áður en Ásgrímur Stefánsson ríkissáttasemjari var boðaður á fund. Það voru mjög undarlegar yfirlýsingarnar sem komu í kjölfar þessara funda. Þó að Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hafi setið þessa fundi, sagði Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins, eftir fundinn að ekkert útspil hafi komið frá ráðherrunum til lausnar deilunni. Einungis kom fram að Halldór hefði lýst því yfir að ótækt væri að funda ekki í tvær vikur. Það er að sjálfsögðu bagalegt ef pattstaðan er slík milli kennara og launanefndar sveitarfélaganna að ríkissáttasemjari sjái enga ástæðu til að funda á næstunni. En þó að fundir séu forsenda þess að þetta verkfall leysist, er það ekki nægjanleg forsenda. Það er einnig bagalegt fyrir alla aðila að mæta reglulega upp í Karphús til að standa fastir á sínu ef engin lausn er í sjónmáli. Ef þetta var það eina sem ríkisstjórnin hafði að segja, var þá nauðsynlegt að funda? Það virðist fátt sem ríkisstjórnin geti aðhafst, fyrst hún ætlar ekki að koma sveitastjórnum til bjargar með auknu fjárframlagi, nema fengið fólk til að funda sem virðist ekki hafa neitt til að tala um. Það sem ég undrast er ekki ráðaleysi ríkisstjórnarinnar og hvað hún aðhefst lítið. Það er mun undarlegra að hafa ekkert heyrt frá sveitarstjórnarmönnum, nema í mýflugumynd. Kristján Þór Júlíusson, sem reytti marga kennara til reiði áður en verkfallið hófst, hefur sagt að ógjörningur sé að verða við kröfum kennara. Stefán Jón Hafstein vill að fólk semji, en hann hefur ekki sagt um hvað eigi að semja. Það er vitað að sveitafélögin hafa mismunandi burði til að semja við kennara. Stór sveitafélög eiga að geta borgað kennurunum betur en þau litlu. Á meðan þau eru öll að semja sem eitt verða þau því að finna einhverja leið til þess að koma til móts við minni sveitafélögin, til dæmis með jöfnunarsjóði sveitafélaganna. Stærð þeirra á því ekki að vera afsökun fyrir samningsleysi. Vonandi hafa kennarar og sveitafélög um eitthvað að ræða næstu dagana til að hægt sé að leysa úr minni vandkvæðum svo sem þeim hvernig úthlutað er úr jöfnunarsjóði. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fastir pennar Skoðanir Svanborg Sigmarsdóttir Mest lesið Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Verðmætatap auðlindagjaldanna – Hverra og hvernig? Haukur V. Alfreðsson Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Málþóf á kostnað ungs fólks Lísa Margrét Gunnarsdóttir Skoðun Úrsúla og öryggismálin - Stöndum gegn vígvæðingu Guttormur Þorsteinsson Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun