Lífið

Fyrsta háhýsi Austurlands

"Ég tryggði mér strax íbúð á efstu hæðinni," segir Auður Anna Ingólfsdóttir hótelstjóri sem keypti fyrstu íbúðina í fyrsta eiginlega háhýsinu á Austurlandi er stendur við Kelduskóga á Egilsstöðum. Kaupin voru gerð í janúar árið 2003 og "þá var ekki einu sinni komin hola," eins og Auður orðar það. Húsið er sjö hæðir og var formlega tekið í notkun nýlega er Malarvinnslan hf. afhenti nýjum eigendum tvær fyrstu íbúðirnar. Samtals er þar 21 íbúð, eða þrjár á hverri hæð. Þær eru af tveimur stærðum og auk þess eru sérgeymslur fyrir hverja íbúð í kjallara hússins og sameiginlegar geymslur. Íbúð Auðar er 90 fermetrar að stærð og hún verður tilbúin eftir tvær vikur eða svo. "Ég var að láta breyta nokkrum atriðum eftir mínu höfði og þessvegna dregst þetta aðeins," segir Auður sallaróleg og finnst ekkert liggja á þótt hún hlakki til að flytja inn. Hún kveðst hafa búið á Héraði í sex ár en hafa alist upp í Reykjavík. "Mér finnst forréttindi að búa hér og langar ekki til Reykjavíkur aftur," segir hún afdráttarlaust. Hún segir nýja háhýsið standa á fallegum stað, rétt við aðal útivistasvæði Egilsstaðabúa, Selskóga. "Svo er þetta hæfilega langt frá miðbænum og ekkert mál að hlaupa í kaupfélagið," segir Auður. Hún kveðst fagna því að verða í viðhaldsfríu húsnæði og ekki spilli að hafa útsýni yfir hið rómaða Fljótsdalshérað, allt til Snæfells. Fasteigna- og skipasala Austurlands hefur sölu íbúða í húsinu með höndum og þegar hefur ríflega þriðjungur þeirra verið seldur. Þær verða afhentar eigendum sínum á næstu vikum.
Blokkin við Kelduskóga á Egilsstöðum trónir hátt yfir aðrar byggingar í hverfinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.