Í nafni jóga 14. september 2004 00:01
Vinsældir jóga á Vesturlöndum síðastliðin ár eiga sér bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar. Svo virðist sem allir vilji eiga hlutdeild í þeim ávinningi sem reglubundin jógaástundun skilar. Hver vill ekki verða sterkari, liðugri, einbeittari, ná djúpri slökun og upplifa hugarró? Jafnt auglýsendur og aðilar úr heilsuræktariðnaðinum hafa reynt að nýta sér þessar vinsældir með því að tengja vörur sínar og þjónustu við jóga. Í auglýsingum er yfirleitt einhver í sitjandi hugleiðslustöðu tengdur við vöruna. Í heilsuræktariðnaðinum eru til alls konar líkamsræktarkerfi sem hafa splæst orðinu jóga inn í nafn sitt. Kerfin eru mörg hver mjög góð og skila sjálfsagt góðu líkamlegu formi og hafa einhver andleg áhrif en það þýðir ekki að þau hafi nokkuð með jóga að gera. Jóga er heildrænt æfinga- og hugræktarkerfi fyrir alla þætti manneskjunnar. Jógastöður æfa öll kerfi líkamans. Að taka nokkrar æfingar úr jóga, hvort sem er öndunaræfingar eða jógastöður, og kalla æfingakerfið jóga er einfaldlega rangt. Eðlilegt er að í jóga sé framþróun og upp komi nýjungar. Hins vegar eru jógafræðin of oft útþynnt í gegnum auglýsingar og aðlögun við önnur líkamsræktarkerfi. Því er ekki allt gull sem glóir eða allt jóga sem kennt er við jóga.
Heilsa Mest lesið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Lífið Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Lífið Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Lífið Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Lífið samstarf Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira