Ragnheiður Guðfinna sparar svona 18. ágúst 2004 00:01
Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir sjónvarpskona segist beita ýmsum ráðum þegar hún þarf að halda að sér höndum í fjármálunum. "Ég reyni þá yfirleitt að minnka notkunina á GSM-símanum og nota frekar heimasímann. Einnig nota ég bílinn minna og rölti frekar styttri vegalengdir. Þá finnst mér muna heilmiklu að versla í Bónus og helst kaupi ég allar nauðsynjavörurnar þar. Að drekka vatn í staðinn fyrir dýra gosdrykki finnst mér líka frábært sparnaðarráð," segir hún. Þegar kemur að fatakaupum finnst Ragnheiði mun skynsamlegra að kaupa sér vandaðri, praktískari og dýrari vörur sem endast lengur en að kaupa fatnað sem skemmist eftir nokkra þvotta. "Í staðinn fyrir að kaupa alltaf ódýra strigaskó sem verða undir eins ónýtir kaupi ég þá frekar örlitið dýrara því þá duga þeir mér lengur. Ég er yfirleitt frekar praktísk þegar kemur að fatakaupum og kaupi mér oftast föt sem duga mér lengi og fara ekki strax úr tísku. Mér finnst ég spara heilmikið á því," segir hún.
Fjármál Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Beint flug til Portó Lífið samstarf Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira