Viltu tapa milljón? 18. ágúst 2004 00:01
Það getur kostað um milljón króna að ganga í það heilaga. En kostnaðurinn af því að vera í hjónabandi er hvergi nærri allur talinn þar sem nú hefur komið í ljós að það getur kostað allt að milljón árlega að gangast opinberlega við ástarsambandi sínu. Sambúðarfólk stendur frammi fyrir miklum freistingum þegar kemur að álagningu opinberra gjalda. Samkvæmt dæmi sem Ásta Vilhjálmsdóttir, starfsmaður Ríkisskattstjóra, leggur upp geta hjón með þrjú börn misst af allt að átta hundruð þúsund krónum með því að játast hvort öðru á pappírum. Þessi upphæð samanstendur af barnabótum, vaxtabótum og ýmsum öðrum tekjutengdum bótum og sköttum sem raðast öðruvísi niður á einstaklinga en pör. Sambýlisfólk sem skráir sig ekki sem slíkt er að brjóta lög og því er hegnt eins og um skattsvikara sé að ræða. Ekki er samt líklegt að skattrannsóknarstjóri muni grípa til aðgerða eins og að elta fólk heim úr vinnunni eða ráðast inn í svefnherbergi á nóttunni til að athuga hverjir sofa hvar.
Fjármál Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira