Með túrtappa að vopni 20. júlí 2004 00:01 Þóra Karítas segir skjaldmeyjarnar forðum ekki hafa skeytt um hvort þær væru með lítil eða stór, silíkon- eða saltvatnsbrjóst Í menntó tilheyrði ég hreyfingu sem kenndi sig við skjaldmeyjar. Þar var að finna helstu valkyrjur skólans og ég fann mig í blóðugum baráttuanda hóps sem vissi ekkert af hverju hann kom saman en kom saman engu að síður. Skjaldmeyjanafnið vísaði til kvenhetja fortíðarinnar sem lögðu stund á vopnaskak og veiðar og voru konur í krapinu eins og við. Okkur fannst töff að skjaldmeyjarnar forðum skeyttu ekki um hvort þær voru með lítil, stór, silíkon- eða saltvatnsbrjóst heldur skáru af sér annað brjóstið til að vera færari um að skjóta af boga. Á göngum Menntaskólans í Reykjavík ´96 heilsuðust skjaldmeyjar með því að leggja höndina á annað brjóstið og kreista fast. Einkennismerki okkar var túrtappi sem við nældum í barminn og við lögðum undir okkur félagsaðstöðuna einu sinni í viku til að halda lokaða fundi. Strákunum var illa við samkundurnar og sannfærðust þeir fljótt um að skjaldmeyjarnar stefndu að valdaráni innan skólafélagsins. Þeir gripu til örþrifaráða og sendu frá sér lagabreytingartillögu þar sem lagt var til að kosningarréttur stelpna innan skólafélagsins yrði afnuminn. Þá fyrst fékk skjaldmeyjafélagið tilgang og upphófst metnaðarfull jafnréttisbarátta sem endaði reyndar eins og amerísk klisja með því að strákarnir báðust afsökunar og afhentu hverri skjaldmey eina rós. Kannski var full ástæða fyrir strákana að hræðast leynimakk skjaldmeyjanna. Heiðursfélagar á samkomunum voru ætíð þær stelpur sem voru á túr hverju sinni. Þær voru settar í sérstakt hásæti þar sem þær voru tignaðar og upphafðar. Enda var yfirmarkmið skjaldmeyjanna að samstilla tíðahringinn. Ef til vill hættulegra markmið en okkur óraði fyrir og aldrei að vita hvað gerist í heiminum ef konur ná þess háttar samstöðu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stuð milli stríða Mest lesið Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Skrölt á gömlum Land Cruiser í þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarki Fjalar Guðjónsson Skoðun Lengjum opnunartíma leikskóla Aron Ólafsson Skoðun Þau sem hafna framförum Birkir Ingibjartsson Skoðun Daglegt líf eldri borgara í Reykjavík: Afhverju ekki eins og í Regínu? Andrea Edda Guðlaugsdóttir Skoðun Hvernig líður Mosfellsbæ? Anna Sigríður Guðnadóttir Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun Frábær árangur í bólusetningum gegn mislingum á Íslandi Ingileif Jónsdóttir Skoðun Þegar jafnréttissjónarmið stjórnmálaflokka bitna á fjárhagsstöðu barnafjölskyldna Kristín Þóra Reynisdóttir Skoðun Stöndum með unga fólkinu í Kópavogi Elvar Bjarki Helgason Skoðun
Daglegt líf eldri borgara í Reykjavík: Afhverju ekki eins og í Regínu? Andrea Edda Guðlaugsdóttir Skoðun
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Þegar jafnréttissjónarmið stjórnmálaflokka bitna á fjárhagsstöðu barnafjölskyldna Kristín Þóra Reynisdóttir Skoðun
Daglegt líf eldri borgara í Reykjavík: Afhverju ekki eins og í Regínu? Andrea Edda Guðlaugsdóttir Skoðun
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Þegar jafnréttissjónarmið stjórnmálaflokka bitna á fjárhagsstöðu barnafjölskyldna Kristín Þóra Reynisdóttir Skoðun