Ís í hita 29. júní 2004 00:01
Ís og kaldir drykkir freista margra í heitri sumarsól. Þessar köldu vörur geta þó verið varhugaverðar því þær geta leitt til skyndilegs höfuðverkjar. Þetta á ekki síst við um þá sem þjást af mígreni. Samkvæmt British Medical Journal er svokallaður íshöfuðverkur algengastur allra höfuðverkja. Tyrknesk rannsókn sýnir fram á að þeir sem þjáist af mígreni séu líklegra til að fá íshöfuðverk en aðrir. Vísindamennirnir könnuðu viðbrögð tveggja hópa höfuðverkjasjúklinga, mígrenisjúklinga annars vegar og sjúklinga sem þjást af streituhöfuðverk hins vegar, við að fá bita af ís í munninn. 74 prósent mígrenisjúklinganna fékk höfuðverk í tilrauninni en ekki nema 32 prósent hinna. Þátttakendunum var uppálagt að hafa ísinn í munninum eins lengi og þeir treystu sér til og var ísinn í munni þátttakendanna í allt að hálfri annarri mínútu. Hjá þeim sem fengu höfuðverk kom hann hins vegar fram svo að segja strax. Sársaukinn kom fram í enni eða sem bank við gagnauga. Verkurinn hvarf aftur eftir örfáar mínútur. Til þess að koma í veg fyrir höfuðverk af þessu tagi ber að forðast að neyta íss og kaldra drykkja hratt og í miklu magni.
Heilsa Mest lesið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Lífið Ástralskur hommasirkus skemmtir börnum og fullorðnum í Tjarnarbíói Lífið Walking Dead-leikkona látin Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Lífið Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira