Hólmfríður leggur upp flest mörk 24. júní 2004 00:01
KR-ingurinn Hólmfríður Magnúsdóttir er þriðji markahæsti leikmaður Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu með sex mörk en enginn leikmaður deildarinnar hefur lagt upp fleiri mörk en hún í fyrstu fimm umferðunum. Hólmfríður hefur alls átt sjö stoðsendingar, allar í tveimur síðustu sigurleikjum KR sem liðið hefur unnið með markatölunnni 15-3. Hólmfríður átti þátt í 11 af þessum 15 mörkum með beinum hætti, skoraði fjögur mörk og átti fimm stoðsendingar í 11-2 sigri á FH og átti síðan tvær stoðsendingar í 4-1 sigri á Breiðabliki. Hólmfríður hefur átt fjórar af þessum stoðsendingum á Guðlaugu Jónsdóttur, tvær á Eddu Garðarsdóttur og eina á Önnu Berglindi Jónsdóttur. Hólmfríður Magnúsdóttir er tvítugur framherji og er á fimmta ári með meistaraflokki KR en hún hefur alls skorað 30 mörk í 46 leikjum í efstu deild. Hún hefur auk þess spilað átta A-landsleiki og hefur verið í byrjunarliðinu í öllum fjórum landsleikjum ársins. Hólmfríður skoraði sjö mörk og átti fimm stoðsendingar í fyrrasumar og hefur þegar bætt sig þó enn séu eftir níu leikir á tímabilinu. Hún hefur fengið stærra hlutverk í sóknarleik KR eftir fráhvarf markadrottningarinnar Hrefnu Jóhannsdóttur og er greinilega að finna sig vel í því ábyrgðarmikla hlutverki.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti Grindavík - KR | Íslandsmeistararnir hefja titilvörnina Körfubolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leik lokið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Fótbolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Fleiri fréttir FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Leik lokið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Belgar á flugi undir stjórn Elísabetar Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Systraþrenna og Ísland er skrefi nær HM: „Ég var smá stressuð“ Grindavík - KR | Íslandsmeistararnir hefja titilvörnina Ronaldo í bann hjá Portúgal Cornelia snýr aftur til Íslands Goðsögnin Mike Ditka fallin frá Systurnar saman í byrjunarliði Íslands „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær Gakpo og Isak missa af stórleiknum Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Viktor Gísli varð fárveikur á HM „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ Mourinho tekur upp hanskann fyrir Mbappe „Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri klikkuð“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Hamilton vonast til þess að keppa í Afríku Dagskráin í dag: Grindavík og KR mætast aftur Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sjá meira