Viðskipti
53 54 55 56 57 58 59 60 61 … 334 ›
Ráðinn öryggisstjóri Síldarvinnslunnar Páll Freysteinsson hefur verið ráðinn nýr öryggisstjóri Síldarvinnslunnar og hóf hann störf fyrr í dag. Viðskipti innlent 1.2.2024 12:21
Stórtækir íbúðaeigendur sanka að sér íbúðum Íbúðum í eigu lögaðila og einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð fjölgaði um tvö þúsund á síðasta ári og fjölgunin hefur ekki verið jafnmikil frá árinu 2010. Viðskipti innlent 1.2.2024 11:08
Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með appi án aukagjalda Verna hefur opnað appið sitt fyrir öll, hvort sem bíllinn er tryggður hjá Verna eður ei. Meðal nýjunga í appinu er sá möguleiki að leggja bílnum í gjaldskyld stæði án þess að greiða aukagjöld. Í notkun á appinu felst engin skuldbinding, bara ávinningur þar sem notendur geta nýtt sér ýmis sértilboð og fríðindi. Notendur sem ná í appið fyrir 1. mars nk. geta unnið 100 þúsund króna gjafabréf frá Play. Samstarf 1.2.2024 08:55
Tekur við sem forstjóri CRI Lotte Rosenberg hefur verið ráðin í stöðu forstjóra íslenska hátæknifyrirtækisins Carbon Recycling International (CRI) og Björk Kristjánsdóttir, sem sinnt hefur starfi tímabundins forstjóra frá 2022, hefur tekið við nýrri stöðu framkvæmdastjóra rekstrar- og fjármálasviðs hjá félaginu. Viðskipti innlent 1.2.2024 08:35
Lækka og festa vöruverð til ársloka IKEA á Íslandi hefur ákveðið að lækka vöruverð á rúmlega sex þúsund vörum frá og með deginum í dag og festir sömuleiðis vöruverð til ársloka 2024. Er þetta meðal annars gert til að greiða fyrir því að SA og verkalýðshreyfingin landi „skynsamlegum“ kjarasamningum sem fyrst. Neytendur 1.2.2024 08:13
Adidas ákveður að selja birgðir sínar af Yeezy Íþróttavöruframleiðandinn Adidas hefur ákveðið að selja birgðir sínar af Yeezy-strigaskóm, sem hafa setið á lager frá því að fyrirtækið sleit samstarfi sínu við tónlistar- og athafnamanninn Kanye West. Viðskipti erlent 1.2.2024 07:05
Getum lært mikið af því að vinna með erlendum sérfræðingum „Við erum íslenskir kúrekar sem er alveg skiljanlegt að mörgu leyti. En getum lært margt af öðrum,“ segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Island.is. Þar á meðal agaðri vinnubrögð. Atvinnulíf 1.2.2024 07:00
Opna spa í gamalli garðyrkjustöð á Flúðum Samkomulag um uppbyggingu á vegum Greenhouse Spa á Flúðum var undirritað á milli fyrirtækisins og Hrunamannahrepps í liðinni viku. Svæði fyrir ferðaþjónustutengda starfsemi hafði áður verið auglýst laust til úthlutunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarstjóra Flúða, Aldísi Hafsteinsdóttur. Viðskipti innlent 31.1.2024 18:03
Eina athugasemdin vegna of mikillar sótthreinsunar Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur birt skýrslu sína eftir úttekt á framleiðslu Alvotech. Eina athugasemdin var vegna þess að eftirlitsmaður sá starfsmann Alvotech sótthreinsa hanska sína of oft og nota þá ekki með hárréttum hætti. Viðskipti innlent 31.1.2024 15:19
Heimkaup hömstruðu ekki pokana heldur keyptu Einhverjum neytendum brá þegar þeir fengu ávexti og grænmeti frá Heimkaupum afhent í bréfpokum, sem ætlaðir eru lífrænum úrgangi. Sumir töldu jafnvel að fyrirtækið hefði staðið í hamstri á pokunum, sem leiddi til þess að þeir voru fjarlægðir úr verslunum. Heimkaup kaupa pokana hins vegar dýrum dómi í nafni umhverfisverndar. Viðskipti innlent 31.1.2024 13:25
Stjórnendum fækkar hjá Lyfjastofnun Ráðist hefur verið í skipulagsbreytingar hjá Lyfjastofnun í tengslum við aðhaldsaðgerðir og hafa sviðum stofnunarinnar verið fækkað. Samhliða breytingunum hefur stjórnendum verið fækkað en ekki þurfti að grípa til uppsagna. Viðskipti innlent 31.1.2024 13:20
Fimmtán sagt upp hjá Alvotech Líftæknifyrirtækið Alvotech sagði upp fimmtán starfsmönnum í gær. Viðskipti innlent 31.1.2024 12:37
Hægfara vaxtalækkunarferli gæti hafist á miðju ári Spáð er 1,9 prósent hagvexti á árinu 2024 í þjóðhagsspá Íslandsbanka. Markar þetta hagsveifluskil og er tiltölulega hægur vöxtur í sögulegu tilliti. Hægfara vaxtalækkunarferli gæti hafist á miðju ári. Viðskipti innlent 31.1.2024 09:14
Líka lausn að ráða erlenda sérfræðinga í fjarvinnu erlendis frá „Það myndi ekki duga til þótt við legðum allt í að efla skólastigið hér þannig að fleiri gætu farið í tæknitengt nám. Sérstaklega með tilliti til þess sem er að gerast í nýsköpunarumhverfinu á Íslandi. Þar sem við erum að sjá gríðarlega áhugaverðar og spennandi lausnir í þróun,“ segir Snæbjörn Ingi Ingólfsson, framkvæmdastjóri Itera á Íslandi. Atvinnulíf 31.1.2024 07:01
Segir ekki tengsl milli bónusa Skattsins og hverju starfsmenn skila í kassann Ríkisskattstjóri segist skilja áhyggjur þeirra sem telja að viðbótarlaun til starfsmanna Skattsins kunni að grafa undan hlutleysi þeirra og gera það að verkum að þeir sæki mál harðar en ella. Hann bendir á að á sama tíma og 260 milljónir króna hafi verið greiddar í slík laun hafi heildarlaunakostnaður skattsins verið um 25 milljarðar. Viðskipti innlent 30.1.2024 23:43
Musk sjö og hálfri billjón króna fátækari Auðjöfurinn Elon Musk mátti ekki fá 55 milljarða dala greiðslu frá fyrirtæki sínu Tesla, í formi kaupréttar árið 2018. Dómari í Delaware í Bandaríkjunum lýsti þessu yfir í kvöld, fimm árum eftir að hluthafar í fyrirtækinu höfðuðu mál vegna greiðslunnar, sem gerði Musk að einum ríkasta manni heims. Viðskipti erlent 30.1.2024 23:21
Verktakar sjá fram á metár í útboðum Met verður slegið í útboðum verklegra framkvæmda í ár, miðað við þau áform sem kynnt voru á Útboðsþingi í dag. Aðgerðir vegna Grindavíkur gætu þó sett strik í reikninginn en Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir að frestun stórframkvæmda gæti orðið ein af mótvægisaðgerðunum. Viðskipti innlent 30.1.2024 20:20
Kalla inn Nóa Kropp vegna hnetusmits Ákveðið hefur verið að kalla inn 200 gramma pakkningar af Nóa Kroppi. Ástæðan er blöndun sem átti sér stað við pökkun sælgætisins, sem veldur því að heslihnetur komust í kroppið. Neytendur 30.1.2024 18:43
Steinunn Hlíf samdi um starfslok Steinunn Hlíf Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri upplifunar viðskiptavina hjá Arion banka, hefur komist að samkomulagi við bankann um starfslok eftir að hafa gegnt starfinu og átt sæti í framkvæmdastjórn bankans frá árinu 2021. Viðskipti innlent 30.1.2024 15:35
Kristján hættir sem framkvæmdastjóri Hér&Nú Kristján Hjálmarsson hefur ákveðið að hætta sem framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Hér og Nú. Hann hyggst einbeita sér að almannatengslum og mun meðal annars áfram vinna náið með viðskiptavinum stofunnar. Viðskipti innlent 30.1.2024 13:13
Minnsta verðbólga í tæp tvö ár Verðbólga hefur ekki verið minni frá því í mars fyrir tveimur árum og mælist nú 6,7 prósentustig. Þetta hljóta að teljast góð tíðindi inn í kjaraviðræður þar sem samningsaðilar stefna allir að gerð samninga sem leiði til minni verðbólgu og lækkun vaxta. Viðskipti innlent 30.1.2024 13:01
Miklar framkvæmdir boðaðar á árinu Opinberir verkkaupar boða ríflega tvöföldun í útboðum verklegra framkvæmda. Umfangsmestu útboðin boða Landsvirkjun, Vegagerðin og Nýr Landspítali. Þetta er meðal þess sem fram kemur í greiningu Samtaka iðnaðarins vegna Útboðsþings 2024 sem fram fer í dag. Viðskipti innlent 30.1.2024 13:01
Verkís leiðir milljarðaverkefni Íslenska verkfræðistofan Verkís leiðir verkefnið GAMMA, sem styrkt er af Evrópusambandinu og er ætlað að gera vísindamönnum kleift að þróa tæknilausir og breyta ítölsku flutningsskipi til að nýta rafeldsneyti í stað jarðefnaeldsneytis. Viðskipti innlent 30.1.2024 11:32
Tengifarþegar geta nú sjálfir bókað ferð með stuttri viðdvöl á Íslandi Flugfélagið Play býður nú tengifarþegum sínum að bóka sjálfir dvöl á Íslandi án aukakostnaðar þegar þeir fljúga á milli Norður Ameríku og Evrópu. Með nýju viðmóti á vef flugfélagsins geta farþegarnir sjálfir klárað slíka bókun og þar með dvalið á Íslandi í allt að tíu daga áður en þeir halda för sinni áfram yfir Atlantshafið. Viðskipti innlent 30.1.2024 10:41
Bónusar hjá Skattinum „skelfilegt fordæmi“ Skafti Harðarson, formaður Samtaka skattgreiðenda, segir bónuskerfi Skattsins siðlaust og spillt. Starfsfólk Skattsins væri opinberir eftirlitsaðilar og ætti að gæta að hlutleysi. Því væri stefnt í hættu með bónusunum. Skatturinn greiddi 260 milljónir í bónusa á síðustu fjórum árum. Viðskipti innlent 30.1.2024 09:56
Verðbólga komin niður í 6,7 prósent Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,16 prósent í janúar frá mánuðinum á undan. Vísitalan án húsnæðis lækkaði hins vegar um 0,5 prósent frá desembermánuði. Verðbólga síðastliðna tólf mánuði er nú komin niður í 6,7 prósent, en stóð í 7,7 prósentum í desember. Viðskipti innlent 30.1.2024 09:17
Hagnaður Össurar nam um átta milljörðum króna á síðasta ári Tekjur Össurar á fjórða ársfjórðungi 2023 námu 210 milljónum Bandaríkjadala, eða 29,2 milljörðum íslenskra króna, sem samsvarar níu prósenta innri vexti. Tekjur á nýliðnu áru námu því 786 milljónum Bandaríkjadala, eða 109,1 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti innlent 30.1.2024 07:44
Hló og grét þegar hún seldi fyrir milljón á einum degi „Jú það kom alveg tími þar sem ég efaðist. Hvort ég ætti að halda áfram eða hætta. Kannski gæti ég þetta ekkert, mér fannst ég ekki nógu sæt eða vita nógu mikið og svo framvegis,“ segir Gerður Huld Arinbjarnardóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Blush. Atvinnulíf 30.1.2024 07:00
Laun hækkað um tíu prósent en kaupmáttur aðeins eitt Launavísitala hækkaði um 9,8 prósent á milli áranna 2022 og 2023 en kaupmáttur launa jókst um eitt prósent á sama tíma. Síðustu ár hafa laun sölu- og afgreiðslufólks hækkað mest en laun stjórnenda og sérfræðinga minnst. Viðskipti innlent 29.1.2024 18:25
Snýr aftur eftir stutt stopp hjá Laufinu Íslandsbanki hefur ráðið Brynjólf Bjarnason í stöðu forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar bankans. Brynjólfur, sem hefur áratugareynslu af störfum í fjármálageiranum, kemur nú aftur til liðs við Íslandsbanka eftir að hafa sinnt starfi framkvæmdastjóra hjá Laufinu frá því í fyrra. Viðskipti innlent 29.1.2024 17:42