Viðskipti innlent
Sammála um aðkomu lífeyrissjóðanna að leigumarkaðnum
María Björk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Almenna leigufélagsins, segir að félagið hafi fundað með VR og þar hafi komið í ljós mikill samhljómur um leigumarkaðinn.
Hækkaði forstjóra ISAVIA áður en hann hækkaði sjálfur
Stjórn Íslandspósts hóf umræðu um launabreytingu forstjóra fjórum dögum eftir að forstjóri ISAVIA var hækkaður í launum. Stjórnarformaður ISAVIA segir hækkunina í samræmi við starfskjarastefnu.
Ríkið endurgreiði sektir
Seðlabankinn telur eðlilegt að endurskoða strax allar sektarákvarðanir og sættir vegna brota á fjármagnshöftum í gildistíð tiltekinna eldri reglna um gjaldeyrismál, þar til reglurnar voru lögfestar síðla árs 2011, og fara þess á leit að ríkissjóður endurgreiði sektir vegna brota á reglunum.
Draga fyrirhugaðar hækkanir á leigu til baka
Almenna leigufélagið mun draga til baka fyrirhugaðar hækkanir leigu sem áttu að koma til framkvæmda á næstu mánuðum og mun nú hefja viðræður við VR hvernig tryggja megi betur stöðu leigjenda.
Áhrifavaldar skattlagðir eins og aðrir
Ríkisskattstjóri minnir áhrifavalda á að þeir þurfa að greiða skatt af starfsemi sinni.
Ingibjörg Guðmundsdóttir ráðin skólastjóri Lýðháskólans á Flateyri
Ingibjörg Guðmundsdóttir, kennslustjóri Háskólans í Reykjavík, hefur verið ráðin skólastjóri Lýðháskólans á Flateyri frá 15. júní næstkomandi.
Huawei kynnti enn dýrari samlokusíma
Tæpri viku eftir að Samsung reið á vaðið hefur kínverska tæknifyrirtækið Huawei kynnt sinn eigin samanbrjótanlegan snjallsíma.
Fær ekki lengur áfall við komu í heimabankann
Verslunarstjóri Hríseyjarbúðarinnar veit líklega meira um íbúa eyjunnar en þeir vita um sjálfa sig. Reksturinn hefur verið erfiður undanfarin ár en bjartari tímar eru framundan að sögn verslunarstjórans.
Vesturbyggð átti vef ársins á Íslensku vefverðlaununum
Auk verðlaunanna fyrir vef ársins fékk Vesturbyggð verðlaun fyrir besta opinbera vefinn.
Toys R´ Us verður Kids Coolshop
Dönsk netverslun tekur yfir rekstur Toys R´ Us á Íslandi.
Fyrsti leikurinn kominn út hjá Teatime
Íslenska tæknifyrirtækið Teatime, sem stofnað var meðal annars af frumkvöðlunum sem stóðu að Plain Vanilla, hefur gefið út sinn fyrsta snjallsímaleik en hann ber nafnið Hyperspeed.
Hagstofan spáir 1,7% hagvexti í ár
Verri horfur í ár má meðal annars rekja til minni útflutnings, en reiknað er með tæplega 3% aukningu þjóðarútgjalda.
Guðrún Nordal áfram forstöðumaður Árnastofnunar
Guðrún Nordal mun veita Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum forstöðu næstu fimm árin.
Arftaki Más þarf að vera góður í mannlegum samskiptum
Forsætisráðherra hefur auglýst til umsóknar starf seðlabankastjóra til næstu fimm ára.
Aukinn innflutningur skili 900 milljónum í vasa neytenda
Ætla má að ábati neytenda af nýju frumvarpi, sem heimilar í auknum mæli innflutning á ófrystum landbúnaðarafurðum, muni nema næstum 900 milljónum króna á ári.
Bílaleigurnar þrjár ekki í SAF
Bílaleigur sem fjallað var um í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær, vegna breytinga á kílómetrastöðu bíla, eru ekki í Samtökum ferðaþjónustunnar. Framkvæmdastjóri samtakanna segir að þeim hafi borist ábendingar um bílaleigur þar sem grunur leikur á að átt hafi verið við mæla í bílum. Málið sé erfitt fyrir allar bílaleigur á Íslandi.
Pálmar Óli nýr forstjóri Daga
Pálmar Óli, sem áður var forstjóri Samskipa, tekur við stöðunni þann 1. mars nk.
Arnarlax tapaði 405 milljónum
Tap fyrirtækisins minnkaði á milli ára en það nam 134 milljónum norskra króna á árinu 2017, sem jafngildir um 1,9 milljörðum íslenskra króna.
Teikn á lofti um alvarlega stöðnun eða samdrátt í hagkerfinu
Vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum hefur lækkað 12 mánuði í röð.
Hækkuðu laun Birnu í tvígang eftir tilmæli um hófsemi
Í bréfi fjármála- og efnahagsráðuneytisins, dags. 6. janúar 2017, er að finna tilmæli sem náðu m.a. til bankaráðs Íslandsbanka um ákvörðun launa bankastjóra bankans.
Starfsmönnum Ölgerðarinnar fækkar um 25
Hluta þeirra býðst að taka við störfum í tengslum við útvistunina.
Laun bankastjóra Íslandsbanka ekki leiðandi að mati stjórnar bankans
Stjórn Íslandsbanka lítur svo á að laun Birnu Einarsdóttur, bankastjóra bankans, séu ekki leiðandi í samanburði við forstjóra á Íslandi.
KFC á Íslandi skiptir um franskar
Skyndibitakeðjan KFC á Íslandi mun innan tíðar reiða fram franskar kartöflur frá nýjum framleiðanda.
Innviðir eru í sigti erlendra fjárfesta
BBA Legal byggði upp öfluga ráðgjöf í orkumálum þegar verkefnum tengdum endurskipulagningu fjármálakerfisins tók að fækka.
Novator fjárfestir í tísku
Novator leiddi 52 milljóna dollara, jafnvirði 6,2 milljarða króna, fjármögnun fyrir tæknifyrirtækið Rebag, sem rekur verslanir þar sem hægt er að kaupa og selja notaðar lúxushandtöskur fyrir konur.
Kunni að hafa bakað Primera Air tjón
Rannsókn skiptastjóra sýnt að forsvarsmenn félagsins hafi mögulega valdið því tjóni í tveimur tilvika. Til skoðunar hvernig staðið var að reikningsskilum. Hyggst höfða riftunarmál og reyna að endurheimta um 520 milljónir króna.
Maritech fjárfestir í Sea Data Center
Norska hugbúnaðarfyrirtækið Maritech hefur keypt um helmings hlut í íslenska sprotafyrirtækinu Sea Data Center.
Sjóðir Eaton með nærri níu prósent í Eimskip
Fjárfestingasjóðir í stýringu Eaton Vance Management eiga orðið samanlagt nærri níu prósenta hlut í Eimskip. Miðað við núverandi gengi bréfa er sá eignarhlutur metinn á um 3,3 milljarða króna.
Býst við fleiri gjaldþrotum flugfélaga
Forstjóri írsku flugvélaleigunnar Avolon, sem er einn af leigusölum WOW air, segir að þrátt fyrir áframhaldandi sterka eftirspurn eftir flugi muni fleiri flugfélög fara í gjaldþrot í ár en áður.
Segir hækkanir skaða samkeppnishæfni
Fákeppni á raforkumarkaði hefur leitt til verðhækkana að mati sérfræðings hjá Samtökum iðnaðarins. Þróunin sé á hinn veginn í Evrópu. Landsvirkjun segir heildsöluverð sem hluti af raforkureikningi notenda hafa lækkað. Verðlagningin