Viðskipti innlent
115 116 117 118 119 120 121 122 123 … 334 ›
Air Canada hefur sig til flugs frá Keflavíkurflugvelli á ný Air Canada hefur hafið sumarflug sitt milli Keflavíkurflugvallar og Toronto og Montreal á ný en flugfélagið flaug seinast til Íslands árið 2019. Flogið verður fjórum sinnum í viku til og frá Toronto og þrisvar sinnum í viku til og frá Montreal fram í október. Viðskipti innlent 3.6.2022 13:12
Hrun í tekjuhlutdeild íslenskrar tónlistar Samanlagðar tekjur íslenskra tónlistarrétthafa af plötusölu og streymi hækkuðu um 5% milli 2020 og 2021. Aukast þær nú fjórða árið í röð en fyrir það mældist sjö ára samfelldur tekjusamdráttur. Þrátt fyrir aukninguna hefur hlutdeild íslenskrar tónlistar minnkað á hverju ári og er nú lægri en nokkru sinni fyrr. Viðskipti innlent 3.6.2022 11:28
Sjá fram á að vanta muni þúsundir iðnaðarmanna Samtök iðnaðarins segja að ef fyrirætlanir um fjölgun íbúðarhúsnæðis á næstu árum ganga eftir muni vanta þúsundir iðnaðarmanna til starfa en að stjórnvöld hafi ekki tekið mið af því í fjárframlögum til iðnnáms. Viðskipti innlent 3.6.2022 08:06
Patreksfjörður aflahæsta höfnin á strandveiðunum Patreksfjörður er aflahæsta höfnin eftir fyrsta mánuð strandveiða sumarsins og jafnframt sú höfn þar sem flestir bátar hafa landað. Alls hafa 370 tonn borist þar á land frá 61 báti, samkvæmt yfirliti frá Landssambandi smábátaeigenda. Viðskipti innlent 2.6.2022 17:25
Eggert hættir sem forstjóri Festar Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festar hf. hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. ágúst næstkomandi. Gert hefur verið samkomulag um starfslok Eggerts en Festi rekur meðal annars Krónuna, Elko og N1. Viðskipti innlent 2.6.2022 16:49
Engin hópuppsögn í maímánuði Engin tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í nýliðnum maímánuði. Viðskipti innlent 2.6.2022 12:55
Hlutfall erlends vinnuafls aldrei hærra og þörf á aukningu Fjölgun Íslendinga dugar ekki til þess að mæta eftirspurn eftir vinnuafli og eykst hlutfall erlends vinnuafls milli ára. Á árinu 2005 voru innflytjendur á aldrinum 20 til 59 ára 7% af fjölda starfandi á vinnumarkaði hér á landi. Núna á fyrsta ársfjórðungi ársins 2022 var hlutfallið komið í 22,3% og hefur aldrei verið hærra. Viðskipti innlent 2.6.2022 12:15
Nýir eigendur Galtalækjar taka því rólega en stefna á deiliskipulagningu Vinjar ehf., félag í eigu nokkurra fjárfesta, hefur gengið frá kaupum á Galtalækjarskógi og hluta af Merkihvolslandi, sem liggur austur af skóginum. Stjórnarformaður félagsins segir stefnuna fyrst og fremst vera að koma svæðinu í sómasamlegt ástand. Sem stendur eru engin frekari áform um nýtingu landsins. Viðskipti innlent 2.6.2022 11:09
Landsbankinn lokar afgreiðslunni á Borgarfirði eystri Landsbankinn hefur lokað afgreiðslu bankans á Borgarfirði eystri og hefur hún færst til útibúsins á Egilsstöðum. Viðskipti innlent 2.6.2022 10:08
Strandveiðisjómenn landa 275 þúsund króna aflaverðmæti að jafnaði úr róðri Mánuði eftir að strandveiðar hófust er búið að veiða um 35 prósent kvótans. Aflinn nemur samtals 3.672 tonnum en strandveiðipottur sumarsins er tíu þúsund tonn af þorski. Auk þess hafa veiðst 353 tonn af ufsa, samkvæmt samantekt Fiskistofu í morgun. Viðskipti innlent 1.6.2022 18:35
Vara við sólhlífum í Costco sem geti valdið eldsvoða Costco á Íslandi hefur innkallað sólhlífar með sólarsellum og LED-ljósum frá SunVilla vegna hættu á því að rafhlaða þeirra ofhlaðist og valdi þannig eldsvoða og brunahættu. Viðskipti innlent 1.6.2022 16:12
Viðskiptahalli ekki verið meiri frá hruni Viðskiptahalli á fyrsta ársfjórðungi ársins mældist hærri en hann hefur mælst frá fjármálakreppunni árið 2008. Aldrei þessu vant var halli á öllum helstu undirliðum viðskiptajafnaðarins en greiningardeild Íslandsbanka hefur ekki hringt viðvörunarbjöllum enda reiknar hún með því að þjóðarbúið rétti úr kútnum innan skamms. Viðskipti innlent 1.6.2022 16:01
Í skýjunum með að hafa fært stóran hluta fyrirtækisins í eigu þjóðarinnar Tæplega sjö þúsund nýir hluthafar hafa bæst í hóp eigenda Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar eftir hlutafjárútboð fyrirtækisins sem lauk á föstudag. Rúmlega tvöföld eftirspurn var eftir hlutafé í fyrirtækinu þar sem almenningur keypti á genginu 8,9 krónur á hlut og stærri fjárfestar buðu 10,03 krónur á hlut. Viðskipti innlent 1.6.2022 15:44
„Það mun ábyggilega taka nokkur ár að ná fyrra trausti“ Mannauðsstjóri ISAVIA telur að það muni taka nokkur ár að ná því trausti sem fólk hafi áður borið til flugvalla sem vinnustað eftir þrengingarnar sem fylgdu kórónuveirufaraldrinum. Fylgifiskur sóttvarnatakmarkana sem ýmist voru hertar eða víkkaðar út var skert starfshlutfall og uppsagnir. Viðskipti innlent 1.6.2022 13:20
Fjögur ráðin í lykilstöður hjá Controlant Áslaug S. Hafsteinsdóttir, Jens Bjarnason, Ragnhildur Ágústsdóttir og Sæunn Björk Þorkelsdóttir hafa öll verið ráðin í lykilstöður hjá hátæknifyrirtækinu Controlant. Viðskipti innlent 1.6.2022 12:01
Arion appið liggur niðri Arion appið liggur nú niðri og er sem stendur ekki aðgengilegt. Viðskipti innlent 1.6.2022 11:43
Fossar nýr fjárfestingarbanki Fossar markaðir hafa fengið starfsleyfi sem fjárfestingabanki hjá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og fengið nafnið Fossar fjárfestingarbanki hf. Fossar voru stofnaðir árið 2015 og þjónusta innlenda og erlenda fjárfesta á sviði markaðsviðskipta, fyrirtækjaráðgjafar og eignastýringar. Viðskipti innlent 1.6.2022 11:09
Hildur Björk stýrir markaðsmálum hjá Isavia Hildur Björk Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsmála og upplifunar hjá Isavia. Viðskipti innlent 1.6.2022 10:33
Halli á viðskiptajöfnuði jókst milli ára Rúmlega fimmtíu milljarða króna halli á viðskiptajöfnuði við útlönd var á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Það er um 27 milljarða króna verri niðurstaða en á sama ársfjórðungi í fyrra. Viðskipti innlent 1.6.2022 10:03
Helmingur nýráðinna hafa áður starfað hjá Eflingu Efling hefur nú lokið við að ráða í störf tæplega tuttugu starfsmanna sem auglýst voru í apríl. Á heimasíðu félagsins segir að rúmur helmingur þeirra hafi reynslu af störfum fyrir félagið. Viðskipti innlent 1.6.2022 08:01
Vill að Íslendingar leggi áherslu á gæði umfram magn í ferðaþjónustu Forstjóri Brimborgar vill að Íslendingar marki sér stefnu í ferðamannamálum um að laða til landsins ferðamenn sem borgi vel. Leggja þurfi áherslu á gæði umfram magn í ferðamennsku. Hann kveðst sannfærður um að það myndi leysa mönnunarvanda og gera greinina sjálfbærari. Viðskipti innlent 31.5.2022 14:32
Mjólkurvörur Örnu á Bandaríkjamarkað Forsvarsmenn Örnu mjólkurvinnslu í Bolungarvík skrifuðu nýverið undir viljayfirlýsingu með forsvarsmönnum Reykjavík Creamery, mjólkurvinnslu í Pennsylvaníu, um samstarf milli fyrirtækjanna um framleiðslu og sölu á mjólkurvörum Örnu í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 31.5.2022 12:12
Ferðamenn, ferðalög og einkaneysla knýja mikinn hagvöxt Hagstofa Íslands áætlar að landsframleiðsla hafi aukist að raungildi um 8,6 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins, borið saman við sama tímabil í fyrra. Viðskipti innlent 31.5.2022 10:31
Gunnar Zoëga leiðir sameinað félag Opinna Kerfa og Premis Upplýsingatæknifyrirtækin Opin Kerfi og Premis hafa sameinast undir merkjum OK. Félögin undirrituðu samning um sameiningu í janúar og lá samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir um mánuði síðar. Viðskipti innlent 31.5.2022 10:16
Miklar tilfinningar þegar Súlur kom í heimahöfn Þota norðlenska flugfélagsins Niceair, Súlur, flaug í fyrsta skipti til heimahafnar á Akureyri í dag. Forsetafrúin fékk þann heiður að nefna flugvélina. Viðskipti innlent 30.5.2022 22:00
Ráðinn listrænn stjórnandi hjá Hér&Nú Jónbjörn Finnbogason hefur verið ráðinn listrænn stjórnandi (e. art director) hjá auglýsingastofunni Hér&Nú. Jónbjörn hefur starfað sem grafískur hönnuður á stofunni frá árinu 2020. Viðskipti innlent 30.5.2022 14:43
Mesta hækkun á leiguverði í tæp tvö ár Hækkun á leiguverði á höfuðborgarsvæðinu milli mánaða mældist 2,1 prósent í apríl og er um að ræða mesta hækkunin síðan í júní 2020. Viðskipti innlent 30.5.2022 14:33
Slegist um þjóna og kokka í ferðaþjónustunni Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir ferðaþjónustuna hafa tekið hraðar við sér eftir faraldurinn en fólk almennt hafði gert ráð fyrir og er svo komið að mörg ferðaþjónustufyrirtæki hafa lokað fyrir sölu. Mikil vöntun er þó á matreiðslufólki og þjónum í sumar og er slegist um þetta starfsfólk. Viðskipti innlent 30.5.2022 13:57
Rjómablíða tók á móti þotu Niceair Eyjafjörðurinn skartaði sínu fegursta í dag þegar Súlur, flugvél Niceair, kom til heimahafnar á Akureyri, nú fyrir stundu. Viðskipti innlent 30.5.2022 13:31
Mun stýra Running Tide á Íslandi Kristinn Árni Lár Hróbjartsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri alþjóðlega loftslagsfyrirtækisins Running Tide á Íslandi og mun hann stýra daglegri starfsemi þess hér á landi. Viðskipti innlent 30.5.2022 10:29