Viðskipti erlent
220 221 222 223 224 225 226 227 228 … 334 ›
Verð á gulli hækkar enn og nær nýjum methæðum Skuldavandræði Bandaríkjanna urðu meðal annars til þess að verð á gulli náði nýjum methæðum þegar markaðir í Austurlöndum opnuðu í dag. Verðið á únsunni stökk upp um 20 dollara á skammri stundu og nemur nú andvirði rúmlega 187 þúsund króna. Viðskipti erlent 25.7.2011 20:45
Gott uppgjör hjá McDonalds Bandaríska hamborgarakeðjan McDonalds skilaði mjög góðu uppgjöri á öðrum ársfjórðungi ársins. Salan jókst um 15% miðað við sama tímabil í fyrra og hagnaðurinn jókst um nær 10%. Viðskipti erlent 25.7.2011 07:41
Ferrari bíll Eric Clapton seldur á uppboði Gulur Ferrari bíll sem eitt sinn var í eigu tónlistarmannsins Eric Clapton og síðar útvarpsmannsins Chris Evans, var seldur á uppboði um helgina fyrir 66,500 pund eða um 125 milljónir króna. Viðskipti erlent 25.7.2011 07:40
Moody´s telur nær 100% að lánshæfi Grikklands verði gjaldþrot Matsfyrirtækið Moody´s hefur lækkað lánshæfiseinkunn Grikklands um þrjá flokka og niður í Ca sem er aðeins einu haki frá gjaldþrotseinkunn. Jafnframt segir Moody´s að næstum 100% líkur séu á að matsfyrirtækið felli einkunnina niður í D eða gjaldþrot. Viðskipti erlent 25.7.2011 07:38
Engin lausn á deilunni um skuldaþak Bandaríkjanna Enn er engin lausn í sjónmáli í deilunni um skuldaþak Bandaríkjanna. Fundað var um málið alla helgina en leiðtogar bandaríska þingsins og Barack Obama bandaríkjaforseti virðast enn langt frá því að ná niðurstöðu í þessari deilu. Viðskipti erlent 25.7.2011 07:18
Fitch Ratings setur lánshæfi Grikklands tímabundið í gjaldþrot Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur fellt lánshæfiseinkunn Grikklands tímabundið niður í D eða gjaldþrot. Reiknað er með að einkunnin komist aftur upp í ruslflokk eftir nokkra daga. Viðskipti erlent 25.7.2011 07:15
Írland hagnast verulega á björgun Grikklands Írland mun hagnast verulega á björgunarpakkanum sem leiðtogar evrusvæðisins samþykktu í gærdag. Viðskipti erlent 22.7.2011 09:46
Börsen: Engin leið framhjá grísku gjaldþroti Það virðist órökrétt en björgun gríska hagkerfisins krefst þess að Grikkland verði gjaldþrota. Það er í fyrsta sinn í sögunni sem ESB-land lendir í slíku. Viðskipti erlent 22.7.2011 09:19
Búa sig undir að Grikkland verði lýst gjaldþrota Lönd á evrusvæðinu búa sig nú undir að stóru matsfyrirtækin þrjú lækki lánshæfiseinkunn sína á Grikklandi niður í D eða gjaldþrot. Yrði það í fyrsta sinn sem land innan Evrópusambandsins er lýst gjaldþrota. Viðskipti erlent 22.7.2011 07:50
Markaðir í góðum plús eftir leiðtogafund evrusvæðisins Hlutabréfamarkaðir í Asíu í nótt voru allir í góðum plús í framhaldi af því að leiðtogar evrusvæðisins komu sér saman um frekari aðgerðir til að draga úr skuldakreppunni á svæðinu. Viðskipti erlent 22.7.2011 07:25
Fegurðardrottning dæmd í fangelsi fyrir innherjasvik Fegurðardrottningin fyrrverandi Daniella Chiese hefur verið dæmd í 30 mánaða fangelsi fyrir aðild sína að því sem kallað hefur verið stærsta innherjasvikamál í sögu Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 21.7.2011 09:21
Vændishneyksli skekur Wall Street Lögreglan í New York hefur upprætt vændishring sem sérhæfði sig í að veita sterkefnuðum fjármálamönnum á Wall Street þjónustu sína. Viðskipti erlent 21.7.2011 09:08
Líkur á samkomulagi um skuldaþak aukast Líkur á því að samkomulag náist um skuldaþak Bandaríkjanna hafa aukist töluvert eftir að Barack Obama Bandaríkjaforseti ákvað að gefa eftir í deilum sínum við bandaríska þingmenn um málið. Viðskipti erlent 21.7.2011 07:22
Merkel og Sarkozy ná samkomulagi fyrir leiðtogafund Angela Merkel kanslari Þýskalands og Nicolas Sarkozy forseti Frakklands hafa náð samkomulagi um hvernig eigi að taka á skuldakreppunni á evrusvæðinu. Viðskipti erlent 21.7.2011 07:17
Ræða um aukna sölu olíu úr neyðarbirgðum Umræða er hafin um hvort Alþjóðlega orkumálastofnunin eigi að setja meira af neyðarbirgðum sínum af olíu á markaðinn til að reyna að halda verðinu í skefjum. Viðskipti erlent 21.7.2011 07:00
Nýr iPhone kynntur í september? Apple-aðdáendur bíða margir hverjir gríðarlegar spenntir eftir fimmtu útgáfunni iPhone símanum. Nú hafa netverjar fullyrt að nýi síminn verður kynntur til leiks í september. Áður var því haldið fram að hann kæmi í byrjun ágúst. Talið er víst að í símanum verði ný uppfærsla á stýrikerfinu, iOS 5, en iPhone 4 er iOS 4 stýrikerfið. Viðskipti erlent 20.7.2011 16:03
Vextir á grískum skuldabréfum yfir 40% Ávöxtunarkrafan á grískum ríkisskuldabréfum til tveggja ára fór yfir 40% í morgun. Svo há krafa hefur ekki áður sést á grískum skuldabréfum. Þegar leið á morguninn lækkaði þessi krafa aðeins og stendur nú í kringum 38%. Viðskipti erlent 20.7.2011 10:11
Uppgjör Goldman Sachs veldur vonbrigðum Fjárfestingarbankinn Goldman Sachs skilaði mun minni hagnaði á öðrum ársfjórðungi ársins en spáð hafði verið. Hagnaðurinn nam rétt rúmlega 1 milljarði dollara eða 185 sent á hlut en spár gerðu ráð fyrir að hagnaðurinn yrði 230 sent á hlut. Viðskipti erlent 20.7.2011 09:39
Svört vinna kostar danska skattinn tugi milljarða Ný rannsókn sýnir að svört vinna á vegum erlendra byggingaverktaka í Danmörku er talin kosta danska skattinn tugi milljarða króna á hverju ári. Viðskipti erlent 20.7.2011 07:47
Methagnaður hjá Apple Bandaríski tölvurisinn Apple skilaði methagnaði á öðrum ársfjórðungi. Hagnaðurinn nam 7,3 milljörðum dollara eða um 860 milljörðum kr. Jókst hagnaðurinn um 125% frá sama tímabili í fyrra. Viðskipti erlent 20.7.2011 07:21
Óvissa í efnahagsmálum beggja vegna Atlantshafs Ótti hefur gripið um sig beggja vegna Atlantsála um að ný fjármálakreppa sé í aðsigi. Í Evrópu er skuldafarg að sliga nokkur ríki evrusvæðisins og björgunaraðgerðir hinna ESB-ríkjanna virðast ekki hafa skilað tilætluðum árangri. Í Bandaríkjunum er vandinn af öðrum toga en þar er komið upp pólitískt þrátefli sem gæti, ef allt fer á versta veg, valdið greiðslufalli bandaríska ríkisins. Viðskipti erlent 20.7.2011 06:00
Schmeichel betri í markinu en á markaðinum Hinn þekkti danski markmaður Peter Schmeichel þénaði milljarða á ferli sínum, einkum hjá enska félaginu Manchester United. Þeir milljarðar eru að stórum hluta að gufa upp því fjárfestingar markmannsins hafa gengið einstaklega illa í gegnum tíðina. Schmeichel reyndist mun betri í markinu en á markaðinum. Viðskipti erlent 19.7.2011 10:51
Vopnaðir vaktmenn komu í veg fyrir sjórán Vopnaðir vaktmenn um borð í danska gasflutningaskipinu Stella Kosan komu í veg fyrir sjórán í gærdag. Viðskipti erlent 19.7.2011 09:43
Norðmenn töpuðu stórt á að selja gullforða sinn Seðlabanki Noregs hefur tapað miklum fjárhæðum á því að hafa selt megnið af gullforða sínum árið 2004. Viðskipti erlent 19.7.2011 09:36
Enn hækkar verð á gulli Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að hækka og var í morgun komið í tæpa 1.605 dollara á únsuna. Verðið fór yfir 1.600 dollara í fyrsta sinn í sögunni í gærdag. Viðskipti erlent 19.7.2011 08:44
Cisco segir yfir 11.000 starfsmönnum upp Tölvufyrirtækið Cisco, sem er umsvifamesti framleiðandi á netbúnaði í heiminum, hefur tilkynnt að það muni segja upp yfir 11.000 manns eða um 15% af öllum starfsmönnum sínum. Viðskipti erlent 19.7.2011 07:44
Mikill skortur á tölvusérfræðingum hrjáir Dani Mikill skortur á tölvusérfræðingum hrjáir nú dönsk tölvufyrirtæki. Samkvæmt frétt um málið í Jyllandsposten er talið að það vanti hátt í 4.000 slíka til starfa í Danmörku. Viðskipti erlent 19.7.2011 07:40
Verð á gulli hækkar enn Heimsmarkaðsverð á gulli heldur áfram að hækka. Verðið fór í 1.600 dollara á únsuna í framvirkum viðskiptum í gærmorgun og hefur aldrei verið hærra. Viðskipti erlent 19.7.2011 00:00
Merkel útilokar ekki skuldaafskriftir Angela Merkel, Þýskalandskanslari, segir nú allt reynt til að koma í veg fyrir að fella þurfi niður eitthvað af skuldum gríska ríkisins. Hún útilokar þó ekki lengur að til þess þurfi að koma. Hún hefur verið gagnrýnd fyrir að standa stíf á því að Grikkir þurfi að greiða allar skuldirnar, en segir nú kannað hvort einhverjir lánardrottnar Grikkja bjóðist til að fella niður eitthvað af skuldum þeirra. Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari Þýskalands, segir að Merkel sé með einstrengingslegri afstöðu sinni að eyðileggja það Evrópusamstarf, sem hann barðist alla tíð fyrir. Viðskipti erlent 18.7.2011 20:30
Skerst í odda milli Facebook og Google í netstríðinu mikla Tæknifyrirtækin Google og Facebook hafa undanfarið háð hljóðlátt stríð sín á milli um yfirráð í netheimum. Átökin fara nú harðnandi með tilkomu Google+, nýs tengslavefs Google, sem beint er gegn Facebook. Viðskipti erlent 18.7.2011 20:30