Tíska og hönnun

Hönnunarteymi kært fyrir skattsvik
Hönnunarteymið fræga Dolce & Gabbana hefur verið kært fyrir skattsvik.

Tígurinn snýr aftur
Tískuhúsið Kenzo endurheimti vinsældir sínar með komu nýrra yfirhönnuða.

Hvor vinnur þennan slag?
Leik- og söngkonan Emmy Rossum og athafnakonan Pippa Middleton eru alls ekki líkar en eitthvað er fatasmekkur þeirra svipaður.

Hönnuðir bera ríka félagslega ábyrgð
Ráðstefnan TEDx Reykjavík verður haldin í þriðja sinn þann 3. júní. Þar verða flutt erindi þar sem kynntar verða nýjar hugmyndir og uppgötvanir. Meðal fyrirlesara er Sigríður Heimisdóttir sem ætlar að ræða félagslega ábyrgð hönnuða.

Kynbomba á deiti í stuttbuxum
Kynbomban Pamela Anderson sást á stefnumóti í vikunni með skeggjuðum manni í Vestur-Hollywood.

Óheppilegt! Rennilásinn bilaði
Leikkonan og fyrirsætan Stacy Keibler brosti sínu blíðasta þegar hún mætti á hina árlegu Grand Prix-keppni í Mónakó um helgina.

Í ofurlitlum skrautsteina sundskýlum
Leikarinn Matt Damon er oft ansi fáklæddur í hlutverki Scott Thorson, elskhuga Liberace, í kvikmyndinni Behind the Candelabra.

Gallabuxur lengi lifi
Gallabuxnaefnið verður ríkjandi í sumartískunni aftur í ár. Gallajakkar, gallabuxur, gallaskyrtur, gallasamfestingar og gallastuttbuxur; öllu þessu má nú klæðast saman án þess að notkun gallaefnisins þyki gegndarlaus. Gallaefni hefur átt miklum vinsældum að fagna allt frá lok 19. aldar þegar það kom fyrst á markað og vinsældir þess fara enn vaxandi. Stóru tískuhúsin hafa ekki látið gallaefnið framhjá sér fara og sem dæmi má geta þess að gallaflíkurnar úr línu Chloé fyrir vorið 2010 og Celine fyrir vorið 2011 urðu einstaklega vinsælar þau árin.-

Skræpóttar og sumarlegar
Þessi síðkjóll frá Lovers + Friends fer leikkonunni Oliviu Munn afar vel en hann er heldur ekkert slor á ofurfyrirsætunni Alessandra Ambrosio.

Prinsessan endurnýtir enn einn kjólinn
Kate Middleton, hertogynjan af Cambridge, mætti í brúðkaup vina sinna á Englandi um helgina í doppóttum kjól frá Topshop.

Suri Cruise með eigin tískulínu
Suri Cruise, sjö ára dóttir Tom Cruise og Katie Holmes, er búin að skrifa undir samning um að hanna eigin tískulínu.

Glæsilegar í grænu
Leikkonan Diane Kruger og söngkonan Mollie King eru með puttann á tískupúlsinum.

Leit hafin að fyrirsætum fyrir hársýningu helgarinnar
"Ein af fyrirsætum Elite sem verða í hársýningu TIGI er Sigurlaug Birna Guðmundsdóttir en hún vann Elite Model Look 2012 hérlendis sem er ein stærsta fyrirsætuleit heims og fór hún áfram í lokakeppnina sem haldin var í Shanghai í desember síðastliðnum þar sem stelpur frá yfir 70 löndum kepptu til sigurs," segir Kristín.

Djarfasti partíkjóll í heimi
Glamúrmódelið Courtney Stodden er ekki þekkt fyrir að hylja líkama sinn með efnismiklum fötum. Hún toppaði sjálfa sig samt alveg þegar hún fór í partí í Hollywood í vikunni.

Keyptu sér eins samfestinga
Hinar hæfileikaríku Gabrielle Union og Julianne Hough eru ekki með sama stílista en náðu samt að klæðast eins samfestingum á rauða dreglinum.

Best klæddar í Met-galaveislunni
Það var sannkölluð tískuveisla í New York á mánudagskvöldið þegar árlega Met-galaveislan var haldin hátíðleg.

Tískuáhuginn lítill
Edda Óskarsdóttir situr fyrir í myndaþætti í franska tímaritinu Madame Figaro. Hún segir fyrirsætustarfið skemmtilegt en hyggur á læknisnám í framtíðinni.

Indiska opnar á Íslandi
Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar sænska verslunarkeðjan Indiska opnaði formlega verslun í Kringlunni en keðjan státar nú af 90 búðum viðs vegar um Norðurlönd. Eins og sjá má var vel mætt í opnunina.

Sjokkeraði með silfurlitað hár
Athafnakonan Nicole Richie stal svo sannarlega senunni á Met-galadansleiknum sem haldinn var í New York á mánudagskvöldið.

Hlutu dönsku snyrtivöruverðlaunin
Íslensku EGF-húðvörurnar frá Sif Cosmetics hlutu á dögunum dönsku snyrtivöruverðlaunin í flokki lúxushúðvara fyrir líkamann.

Vel heppnuð opnun hjá Rebekku og Dúsu
Fatahönnuðirnir Rebekka Jónsdóttir og Dúsa Ólafsdóttir opnuðu nýja verslun á föstudag.

Í eins kápum í London
Hinar hæfileikaríku Gwen Stefani og Kourtney Kardashian eru báðar stórglæsilegar í þessari kápu frá Kelly Wearstler.

Ofurpæjur takast á
Leikkonurnar Allison Williams og Jennifer Aniston púlla þennan top frá Christian Dior báðar.

Vinsæll herratískubloggari
"Áhuginn á tísku kviknaði í menntaskóla en þá lagði maður jogginggallann á hilluna og fór að spá í hverju maður klæddist,“ segir Sindri Snær Jensson, tískubloggari og knattspyrnumarkmaður, sem heldur úti tískubloggsíðunni Sindrijensson.com.

Skipuleggur flóamarkað í Kópavogi
Berglind Häsler segir ekki allt þurfa að gerast innan póstnúmers 101. Hún skipuleggur flóamarkað sem fer fram í húsnæði við Nýbýlaveg um helgina.

Kampavín og kosningar - Freebird opnar á Laugavegi
Meðfylgjandi myndir voru teknar í svokölluðum "Champagne Brunch" í formlegri opnun á nýrri Freebird verslun að Laugavegi 46 í hádeginu í dag. Eins og sjá má á myndunum voru gestir áberandi glaðir í kosningagír annað hvort nýbúnir að kjósa eða á leiðinni á kjörstað.

Glæsileg útskriftarsýning fatahönnuða
Útskriftarnemar í fatahönnun við Listaháskóla Íslands sýndu útskriftarverkefni sín í Hafnarhúsinu á föstudagskvöldið. Sýningin var vel sótt og almenn hrifning ríkti. Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, festi stemninguna á filmu.

Best klædda ólétta kona heims
Tímaritið Vanity Fair er búið að taka saman lista yfir best klæddu óléttu konurnar í heiminum. Það kemur lítið á óvart að hertogynjan af Cambridge, Kate Middleton, trónir á toppnum.

Skálmastutt í sumar
Stuttbuxur sáust víða á sýningarpöllum þegar vorlínur þessa árs voru kynntar. Stuttbuxur eiga sérlega vel við íslenska veðráttu því þannig má fá sól á hvíta fótleggi án þess að hafa áhyggjur af gáskafullum sumarvindum.

Dásamleg í dragt
Leikkonan Carey Mulligan stal senunni í boði á vegum Tiffany & Co. í New York í gærkvöldi.