Menning

Fótbolti í morgunsárið

Þeir eru glaðbeittir í morgunsárið guðsmennirnir sem spila fótbolta í KR heimilinu milli klukkan 8 og 9 á fimmtudagsmorgnum. Spurðir hvort þeim finnist þetta ekki ókristilegur tími fyrir iðkun fótbolta svara þeir því galvaskir neitandi og einn bætir við að boltinn sé góður með morgunbæninni.

Menning

Skálað í skjóli menningar

Myrkar hliðar fylgja breyttum drykkjusiðum Íslendinga. Þeim fjölgar sem drekka áfengi daglega. Hættulegt, segir Þórarinn Tyrfingsson. </font /></b />

Menning

Íslenskum nútímaverkum fjölgi

Framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands segir athugandi að fjölga íslenskum nútímaverkum á dagskrá sveitarinnar. Tónskáld gagnrýna sveitina fyrir að flytja of fá verk af því tagi en tónleikagestir virðast ekki sjá ástæðu til að fjölga þeim.

Menning

Reykingar kvenna minnka

Reykingar íslenskra kvenna hafa dregist saman um 10% á 13 árum. Þetta kemur fram í fréttapistli heilbrigðisráðuneytisins. Fjórðungur íslenskra karlmanna reykti daglega árið 2003 á móti 19% íslenskra kvenna samkvæmt samnorrænni rannsókn á reykingum Norðurlandabúa.

Menning

Fækkar aðgerðum vegna æxla í húð

Nýtt lyf sem upprætir vissar tegundir húðkrabbameins hefur verið flutt hingað til lands og samþykkt af yfirvöldum. Það heitir Metvix og er þróað og framleitt í Noregi. Lyfið hefur gagnast vel á húðæxli af flöguþekju-uppruna og fækkað skurðaðgerðum vegna þeirra.

Menning

40% tekna til ríkis og bæja

Það stefnir í að hið opinbera jafni met sitt í álögum á landsmenn á þessu ári. Nú er áætlað að rétt um fjörutíu prósent af öllum tekjum landsmanna fari til ríkis og sveitarfélaga í formi skatta. Stjórnvöld hyggjast þó létta skattbyrðina á næstu árum.

Menning

Herferð gegn offitufaraldri barna

Til þess að berjast gegn offitufaraldri barna í Bandaríkjunum þarf þjóðin að fara í allsherjar herferð gegn vandanum. Bandaríska vísindaakademían (National Academy og Sciences), sem rannsakað hefur orsakir og afleiðingar offituvandans, kynnti nýlega skýrslu sína um málið.

Menning

Brynhildur hlaut verðlaunin

Brynhildur Þórarinsdóttir hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin sem afhent voru við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu nú síðdegis. Verðlaunin hlaut Brynhildur fyrir bók sína <em>Leyndardómur ljónsins</em> en hún fjallar um fjóra krakka í sjöunda bekk sem kynnast í skólabúðum að Reykjum í Hrútafirði og upplifa dularfulla atburði.

Menning

Túnfiskur spari og hversdags

Túnfiskur hefur ekki verið algengur réttur á borðum Íslendinga hingað til nema maukaður í majónessalötum. Túnfiskur er hins vegar annað og meira og auðvelt að búa til úr honum alls kyns eðalrétti.

Menning

Matur sem börnin borða

Margir kannast við það að börnin þeirra borði lítið sem ekkert heima hjá sér en séu miklir mathákar í leikskólanum. Út frá þessu algenga vandamáli kviknaði hugmyndin," segir Ásta Vigdís Jónsdóttir, ritstjóri bókarinnar Krakkaeldhús sem nýverið kom út hjá útgáfunni Hemru. Í bókinni eru tíndar til uppskriftir frá leikskólum landsins

Menning

Í fjallasölum austurrísku Alpanna

Skíðagöngur í fjallasölum austurrísku Alpanna eru meðal þess sem Ferðaþjónusta bænda er að skipuleggja á útmánuðum. Slíkt telst til tíðinda hér á landi. Þetta er vikuferð og stendur frá 5. til 12. mars. Flogið er til Verona á Ítalíu og ekið þaðan til bæjarins Seefeld, sem er í hjarta fjallahéraðsins Týról.

Menning

Aldrei fleiri á Hvannadalshnjúk

Aldrei hafa fleiri gengið á Hvannadalshnjúk á einu ári en í ár. Fyrirtækið Íslenskir fjallaleiðsögumenn áætlar að alls hafi um og yfir 400 manns heimsótt þennan hæsta tind landsins, þar af 391 á þeirra vegum og af þeim komust 323 á leiðarenda.

Menning

Best að æfa á morgnanna

"Ég reyni að stunda nokkuð reglulega líkamsrækt yfir veturinn og fer þá yfirleitt í stöðvar eins og World Class eða aðrar sem ég get lyft lóðum í og komist á hlaupabretti," segir Bryndís Hlöðversdóttir alþingismaður. Á sumrin segist hún vera óskipulagðari.

Menning

E-vítamín við heyrnarleysi

E-vítamín getur haft áhrif á skyndilegt heyrnarleysi, samkvæmt nýlegri rannsókn sem gerð var í Ísrael. Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar á ráðstefnu háls-, nef- og eyrnalækna í New York í vikunni.

Menning

Bollywood í Kramhúsinu

Danska magadansmærin Anna Barner Sarp er stödd hér á landi og ætlar að halda þriggja vikna dansnámskeið í Kramhúsinu sem hefst á þriðjudag. Þar er þó um að ræða miklu meira en bara magadans því Anna blandar saman indverskum dansi, arabískum magadansi og hiphopi svo úr verður hinn vinsæli Bollywood-dans sem fer nú sigurför um heiminn.

Menning

Verklegt nám í ensku

Enskuskólinn var stofnaður 1986 af Julie Ingham enskukennara."Við höfum alltaf lagt mestu áhersluna á talmálið og flokkum nemendur í sex aðalstig eftir talgetu. Innan hvers stigs eru þrjú meginnámskeið þannig að alls er hægt að fara í gegnum 18 sérnámskeið. Allir kennarar skólans hafa ensku að móðurmáli og sérmenntun í enskukennslu fyrir útlendinga.

Menning

Sígaunstemmning og grænt te

 Feng Shui-húsinu á Laugavegi verður efnt til fjölda námskeiða í vetur og nú þegar er búið að skipuleggja dagskrá fram í desember. Meðal þess sem boðið verður upp á eru Feng Shui-námskeið I og II þar sem Rósa Traustadóttir leiðir þátttakendur um töfraheima Feng Shui-fræðanna. Rósa segir alla geta tileinkað sér Feng Shui til betra lífs og það sé mikill misskilningur að fólk þurfi að henda öllu út hjá sér og byrja upp á nýtt.

Menning

Í sífelldri endurnýjun

Ordabok.is er vefsvæði þar sem hægt er að fletta upp í ensk-íslenskri og íslensk-enskri orðabók. Nú er búið að fjölga uppflettiorðunum um 25.000 þannig að samtals eru þau 130.000 og orðabókin sú stærsta sinnar tegundar á Íslandi.

Menning

Boltar í stað stóla

Æfingaboltar rúlla nú um líkamsræktarstöðvarnar enda nýjasta æðið í heimi heilsuræktar. Krisztina G. Agueda er menntaður íþróttakennari og hefur réttindi til Fit-ball kennslu og þjálfunar, en Fit-ball eru æfingaboltar sem koma frá Ítalíu þar sem heilt æfingakerfi hefur verið smíðað í kringum þá.

Menning

Fullur af þrótti og hugmyndum

Skúli Skúlason, fjármálastjóri hjá Íþrótta-og tómstundaráði Reykjavíkur, lauk BS gráðu í viðskiptafræði síðastliðið vor frá Háskólanum í Reykjavík. Hann tók námið með fullri vinnu tvö fyrri árin en síðasta árið gat hann helgað sig því eingöngu.

Menning

Lifa í öðrum veruleika

Fyrir nokkrum mánuðum hitti ég skólastjóra úti á landi. Ég var að halda tóbaksvarnarfyrirlestra fyrir unglingana í skólanum hans. Hann sagðist ekki hafa svo miklar áhyggjur af reykingum í sínum skóla og það fannst mér ánægjulegt að heyra. Hins vegar sagði hann að upp væri að koma nýr hópur sem væri ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af.

Menning

Tveggja vikna trommunámskeið

"Við Gulli höfum verið að halda nokkur trommunámskeið gegnum tíðina og það hefur gefist vel. Þetta er alltaf að þróast hjá okkur og verða betra og betra," segir Jóhann Hjörleifsson, en hann mun byrja með trommunámskeið þann 4. október ásamt Gunnlaugi Briem.

Menning

Góðir skór og vilji allt sem þarf

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson ætlar að fara alla leið til Minneapolis í Bandaríkjunum til að taka þátt í maraþonhlaupi. Það er þó ekki hvaða maraþonhlaup sem er því Twin City maraþonið er heimsfrægt og hefur verið kjörið fallegasta maraþon Bandaríkjanna. Hann hefur stundað útihlaup undanfarin tvö ár.

Menning

Þriðjungur deyr úr hjartakvillum

Sautján milljónir manna deyja ár hvert úr hjartasjúkdómum eða hjartaáföllum. Það er um þriðjungur þeirra sem deyja á ári í heiminum. Þetta kom fram á fundi Alþjóðlegu heilbrigðismálastofnunarinnar sem haldinn var í tilefni alþjóðlega hjartadagsins sem var í gær.

Menning

Strákarnir okkar á KR-velli

Þó að knattspyrnuvertíðinni sé formlega lokið í ár sáust kunnuglegir búningar á KR-vellinum í Frostaskjólinu í dag. Þar fóru fram tökur á atriði úr myndinni „Strákarnir okkar“ sem er væntanleg í kvikmyndahús snemma á næsta ári.

Menning

Sýning á verkum Guðmundu

Sýning á verkum Guðmundu Andrésdóttur var opnuð í Listasafni Íslands í gær. Guðmunda var einn helsti abstraktlistmálari íslensku þjóðarinnar en hún lést fyrir tveimur árum, áttræð að aldri.

Menning

Hundar finna lykt af krabbameini

Vísindamenn í Englandi hafa komist að því að hundar finna lykt af krabbameini. Hundar hafa allt að hundrað þúsund sinnum betra lyktarskyn en mannfólkið.

Menning

Vetnisvagninn hefur reynst vel

Selta af völdum særoks olli bilunum í upphafi prófana vetnisvagns í Reykjavík. Árangurinn er samt betri en búist var við og tilraunin er hálfnuð. Nýorka stefnar á að tilraunakeyra vetnisbíla og vetnisvélar í skipum. </font /></b />

Menning

Ævisaga Laxness á þýsku

Bókaforlagið JPV-útgáfa hefur samið við þýska forlagið Random House/Bertelsmann um að það gefi út ævisögu Halldórs Laxness eftir Halldór Guðmundsson á þýsku.

Menning