

Tónlistarráð býður landsmönnum boðsmiða á heiðurstónleika með Magnúsi Eiríkssyni tónskáldi og textahöfundi sem fram fara í Hörpu þann 1. desember. Tilefnið er að Magnús er heiðurshafi fyrstu Þakkarorðu íslenskar tónlistar.
Töff aðventuskreytingar þurfa ekki að kosta mikið. Stjörnuljósmyndarinn Kári Sverris sló í gegn á Stöð 2 í þáttunum Bætt um betur með Ragnari Sigurðssyni innanhússarkitekt en nú er Kári að taka í gegn nýja íbúð sína á alveg einstaklega fallegan hátt.
Aðventan nálgast óðfluga og virðast stjörnur landsins margar hverjar komnar í jólagírinn. Það var mikið líf í höfuðborginni um helgina þar sem stórtónleikar, kosningapartý, glæpasagnahátíð, afmæli og almennt fjör stóð upp úr.
Kvikmyndagerðamaðurinn Ísak Hinriksson og kærastan hans Karítas Spanó fatahönnuður eignuðust dreng þann 16. nóvember síðastliðin. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman.
Einu sinni var glæpamaður. Hann réðst á afgreiðslumann í smábúð í Bandaríkjunum þegar enginn annar var þar og heimtaði peningana í kassanum. Hann varð hins vegar fyrir vonbrigðum, því seðlarnir voru ekki margir. Þá læsti hann afgreiðslumanninn í bakherbergi, og batt hann og keflaði. Svo afgreiddi hann sjálfur til að fá meira í kassann, allt þar til lögreglan yfirbugaði hann nokkrum klukkutímum síðar.
Í lok október síðastliðinn hélt Þórir Garðarsson af stað í ferðalag um jörðina ásamt eiginkonu sinni og vinahjónum. Um er að ræða 38 daga ferð þar sem fyrsti áfangastaðurinn er Kína og sá seinasti Bandaríkin.
Stórstjarnan og söngkonan víðfræga Adele komst við og felldi tár á laugardaginn þegar hún hélt sína síðustu tónleika í Las Vegas í Nevada-ríki í Bandaríkjunum. Söngkonan hefur varið síðustu tveimur árum í borginni og haldið hundrað tónleika í tónleikasal Caesars Palace.
Frambjóðendur ýmissa flokka stóðu fyrir kosningaveislu eða gleðskap í gærkvöldi í tilefni þess að vika er til alþingiskosninga. Ungir sjálfstæðismenn stóðu fyrir Project XD í Valhöll, Samfylkingin hélt fögnuð fyrir ungt jafnaðarfólk á skemmtistaðnum Hax á meðan Framsókn var í stuði á Bankastræti 5.
Grínistarnir Steindi jr og Saga Garðars munu rifja upp gamla takta í sketsaseríunni Draumahöllinni sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í desember og janúar. Steindi segist himinlifandi með að komast loksins aftur í að gera sketsaþætti eftir nokkurra ára hlé þó Draumahöllin verði enginn hefðbundinn sketsaþáttur.
Það er mikið um að vera í íslensku samfélagi um þessar mundir og styttist nú óðfluga í kosningar sem fara fram næstkomandi laugardag, 30. nóvember. Lífið á Vísi tók púlsinn á nokkrum konum í framboði fyrir fjölbreytta flokka og fékk að heyra hvað þær eru að hlusta á þegar þær eiga stund milli stríða.
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni!
Kristján Þór Gunnarsson, læknir og gestur í fyrsta þætti Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms, leggur áherslu á mikilvægi þess að finna nýjar leiðir til að takast á við faraldur krónískra langvinnra veikinda, sem hann kallar samfélagssjúkdóma.
Fyrsta stiklan fyrir sjónvarpsþætti um líf og starf Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta, var birt í dag. Þættirnir heita einfaldlega Vigdís en fyrsti þátturinn verður frumsýndur á RÚV 1. janúar á næsta ári en þættirnir verða fjórir talsins.
Hraðfréttabræðurnir þeir Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson eru að byrja með nýjan hlaðvarpsþátt sem nefnist einfaldlega Hlaðfréttir. Þeir segja þáttinn vera þátt á ferðinni sem upplýsi, fræði og gleðji „en við lofum engu,“ segir þeir.
Víðfrægi tónlistarmaðurinn Khalid hefur nú komið út úr skápnum sem hinsegin manneskja en þessu greinir hann frá í færslu á samfélagsmiðlinum X.
Skautasvell Nova og Orkusölunnar á Ingólfstorgi var formlega opnað í gærkvöldi. Flytja þarf inn sérfræðinga að utan til að setja skautasvellið upp.
Helga Gabríela Sigurðardóttir, matreiðslumaður og þriggja barna móðir, er þekkt fyrir að deila hollum og næringaríkum uppskriftum fyrir alla fjölskylduna á samfélagsmiðlum sínum. Nýverið birti hún uppskrift að sykurlausum og dísætum smákökum sem er tilvalið að baka um helgina.
Tom er stjarneðlisfræðingur og einn hæfileikaríkasti spilari í heimi í íslenska tölvuleiknum Starborne: Frontier. Tom er búsettur í Adelaide í Ástralíu og flaug alla leiðina til Íslands til þess að heimsækja félaga sína hjá tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds á Eiðistorgi og hitta aðra spilara leiksins.
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.
Fjölmennt var í forsýningarpartýi heimildaþáttaraðarinnar Kaninn sem fór fram á veitingastaðnum Just Wingin' It á Snorrabraut í gærkvöld.
Kendrick Lamar, einn vinsælasti tónlistarmaður heims, gaf óvænt út heila plötu í dag. Platan heitir GNX og er sjötta plata rapparans.
Hún talar táknmál, spilar á píanó og syngur eins og engill. Sindri Sindrason fór í morgunkaffi til Svandísar Svavarsdóttur, formanns Vinstri grænna og kynntist hinni hliðinni í Íslandi í dag á Stöð 2 í vikunni.
Við Kinngargötu í Urriðaholti er að finna fallega fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð í húsi sem var byggt árið 2023. Eignin er 154 fermetrar að stærð og einkennist af miklum munaði. Ásett verð er 159,9 milljónir.
Bandaríski grínistinn og spjallþáttakóngurinn Jay Leno gengur um nú um með lepp. Hann er blár og marinn í framan, handleggsbrotinn og krambúleraður víðs vegar um líkamann. Leno segist hafa hlotið áverkana þegar hann féll niður hlíð.
Hjónin Þorbjörg Sveinsdóttir og Ásgeir Hauksson voru komin í háttinn að kvöldi 12. apríl í fyrra þegar Ásgeir fór skyndilega í hjartastopp.
Gunnar Helgason fyllti Smáralindina af bókþyrstum gestum á dögunum þegar hann kynnti nýja bók til leiks og tróð upp með fríðu föruneyti.
Tónlistar- og knattspyrnumaðurinn Logi Tómasson betur þekktur sem Luigi gefur í dag út nýtt tónlistarmyndband við lag sitt Virðingu á nafnið. Landsliðsmaðurinn er upptekinn í Noregi og því hleypur enginn annar en stjörnulögmaðurinn Villi Vill í skarðið í myndbandinu. Lagið er af nýútkominni plötu Loga sem er stórhuga og blæs til útgáfutónleika 22. desember.
Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu hefur fest kaup á íbúð við Meistaravelli í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðina keypti hún af hjónunum Viktori Bjarka Arnarsyni, fyrrverandi knattspyrnumaður og þjálfari, og Álfrúnu Pálsdóttur.
Í gær fór fram forsýning á hinum vinsælu þáttum IceGuys en yfir áttahundruð manns mættu í Smárabíó þar sem fyrstu tveir þættirnir voru sýndir í heilum þremur bíósölum. Að sögn framleiðenda var mikil gleði og spenna í loftinu og augljóst að hér var um að ræða viðburð sem enginn vildi missa af.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í nýjan sjónvarpsþátt sem fer í loftið á Stöð 2 í vor. Þátturinn heitir Spurningasprettur og verður Gummi Ben þáttastjórnandi og spyrill.