Golf
170 171 172 173 174 175 176 177 … 177 ›
Tíu ár frá fyrsta sigri Tigers Fyrir tíu árum náði ungur maður að nafni Tiger Woods einhverjum merkilegasta árangri íþróttasögunnar. Hann vann sitt fyrsta stórmót þegar hann rúllaði upp Masters-mótinu. Þar með varð hann fyrsti þeldökki kylfingurinn til að vinna stórmót en einnig sá yngsti. Golf 5.4.2007 00:01
Rásröðin klár fyrir Masters-mótið í golfi Búið er að raða niður í ráshópa á fyrstu tvo hringina á Mastersmótinu, sem hefst á morgun. Meistarinn frá í fyrra, Phil Mickelson, er í ráshópi með Ástralanum Adam Scott og áhugamanninum Richie Ramsay frá Skotlandi, sem sigraði á Opna bandaríska áhugamannameistaramótinu í fyrra. Tiger Woods er í ráshópi með Englendingnum Paul Casey og Aaron Baddeley frá Ástralíu. Golf 4.4.2007 12:30
Adam Scott sigraði í Houston Ástralski kylfingurinn Adam Scott vann góðan sigur á Opna Houston mótinu í golfi sem lauk í Texas í gærkvöld. Sjónvarpsstöðin Sýn var með beina útsendingu frá lokahringnum. Scott lauk keppni á 17 höggum undir pari og var með þriggja högga forystu á næstu menn, þá Stuart Appleby og Bubba Watson sem luku keppni á 14 undir pari. Golf 2.4.2007 12:20
Sex efstir og jafnir á Shell mótinu Sex kylfingar deila efsta sætinu að loknum tveimur hringjum á Opna Shell Houston mótinu í golfi sem er liður í PGA mótaröðinni. Sýn verður með beina útsendingu frá mótinu annað kvöld. Golf 31.3.2007 13:01
Birgir Leifur úr leik í Portúgal Enski kylfingurinn Ross McGowan er í forystu á opna portúgalska golfmótinu eftir annan daginn en hann er á sex höggum undir pari eftir að hafa leikið á -3 báða fyrstu dagana. Birgir Leifur Hafþórsson komst ekki í gegn um niðurskurð þrátt fyrir ágætan hring í gær þar sem hann lauk keppni á höggi undir pari. Golf 31.3.2007 12:45
Betri dagur hjá Birgi í dag en það dugar varla til Birgir Leifur Hafþórsson lauk keppni á Opna Portúgalsmótinu í golfi í dag á einu höggi undir pari en ólíklegt má telja að hann komist áfram í gegnum niðurskurðinn þar sem hann er nú í 90. sæti. Golf 30.3.2007 14:35
Birgir Leifur á pari á fyrstu holu Birgir Leifur Hafþórsson hefur nú hafið leik á öðrum hring Opna portúgalska mótsins sem er hluti af Evrópumótaröð karla í golfi. Eftir því sem fram kemur á vefnum kylfingur.is hóf Birgir leik á fyrsta teig og paraði þá holu ólíkt því sem hann gerði í gær þegar hann fékk skolla á fyrstu holu. Golf 30.3.2007 10:11
Birgir á sjö yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson var langt frá sínu besta á fyrsta keppnisdeginum á Estoril mótinu í golfi sem fram fer í Portúgal. Birgir lék á 79 höggum í dag og er því á átta höggum yfir pari vallar. Erfið skilyrði voru í Portúgal í dag þar sem hvassviðri setti svip sinn á spilamennsku keppenda. Mótið er liður í Evrópumótaröðinni. Golf 29.3.2007 22:24
Birgir byrjar illa í Portúgal Birgir Leifur Hafþórsson hefur nú lokið við níu holur á Opna Portúgalska mótinu í golfi en það mót er hluti af Evrópumótaröð karla í golfi. Birgir Leifur byrjaði mjög illa og var kominn á fjögur högg yfir par(+4) eftir átta holur en hann náði að laga stöðuna með fugli nú rétt í þessu. Aðeins 17 kylfingar eru að spila undir pari það sem af er mótinu en aðstæður eru erfiðar vegna hvassviðris. Golf 29.3.2007 17:17
Birgir hefur leik klukkan 14:35 Birgir Leifur Hafþórsson er í síðasta ráshópi með Cabrera Bello og Quiros frá Spáni á fyrsta og öðrum hring á Opna Portúgalska mótinu sem hefst í dag. Þeir eiga að hefja leik klukkan 14:30 og byrja á 8. teig. Golf 29.3.2007 14:22
Góður leikur Woods dugði ekki til Tiger Woods lék á 8 höggum undir pari, eða 64 höggum, og var efstur einstaklinga í klúbbakeppninni, Tavistock Cup, sem lauk á Lake None vellinum í Orlando í gærkvöldi. Keppnin er árleg og er á milli Orlando klúbbanna, Isleworth, sem Tiger tilheyrir, og Lake None. Golf 28.3.2007 17:13
Birgir Leifur: Stefni á að gera betur en á síðasta móti Birgir Leifur Hafþórsson er í síðasta ráshópi, ásamt tveimur Spánverjum, á fyrsta hring á Opna portúgalska mótinu í golfi sem hefst á Quinta da Marinha vellinum á morgun. Birgir Leifur á að hefja leik á 8. teig klukkan 14:35. Golf 28.3.2007 17:06
Woods vann í Miami í sjötta sinn Tiger Woods sigraði á CA-heimsmótinu í golfi í gær þrátt fyrir að hafa spilað illa á lokadeginum í Miami í gær og klárað hringinn á einu höggi yfir pari. Fjögurra högga forskot kappans fyrir lokadaginn gerði það hins vegar að verkum að aðrir kylfingar náðu ekki að ná efsta sætinu af honum. Þetta var í sjötta sinn sem Woods sigrar mótið. Golf 26.3.2007 12:30
Birgir Leifur lauk keppni á pari Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk keppni á pari á Madeira-mótinu í Portúgal og er í 45. sæti þegar um helmingur keppenda á eftir að ljúka leik. Sá árangur færir Birgi Leifi um 340 þúsund krónur í verðlaunafé, en hann lék á einu höggi yfir pari í morgun. Golf 25.3.2007 13:40
Garcia missti pútt og hrækti á völlinn Spænski kylfingurinn Sergio Garcia á yfir höfði sér væna fjársekt fyrir að hafa hrækt ofan í holuna á 13. braut á heimsmótinu sem fram fer í Miami um helgina. Garcia fékk skolla á brautinni eftir að hafa misst auðvelt pútt og brást við með fyrrgreindum hætti. Þess má geta að hrákan fór beint ofan í holuna. Golf 25.3.2007 13:15
Birgir Leifur lék á einu höggi undir pari Birgir Leifur Hafþórsson er samtals á einu höggi undir pari þegar þremur hringjum er lokið á Madeira-mótinu í Portúgal. Birgir Leifur var að ljúka keppni rétt í þessu og lék hann hringinn í dag 71 höggi, einu höggi undir pari. Hann er í 35. sæti mótsins sem stendur ásamt 11 öðrum keppendum, en einum hring er ólokið. Golf 24.3.2007 13:31
Birgir Leifur líklega áfram Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Leyni, lauk spilamennsku í dag á tveimur höggum undir pari. Í gær hafði hann spilað á tveimur höggum yfir og endar því á pari. Viðbúið er að hann komist í gegnum niðurskurðinn en Birgir er nú í 39. sæti ásamt hópi manna. Golf 23.3.2007 17:34
Birgir Leifur á einu höggi yfir pari eftir 11 holur Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Leyni, er á einu höggi yfir pari þegar hann hefur leikið ellefu holur af átján á opna Madeira mótinu í golfi á eyjunni Madeira sem tilheyrir Portúgal. Golf 23.3.2007 16:08
Stensson og Allenby efstir í Miami Svíinn Henrik Stenson og Ástralinn Robert Allenby hafa forystu eftir fyrsta hring á WGC-CA meistaramótinu í Miami sem er liður í PGA-mótaröðinni. Golf 23.3.2007 09:47
Birgir á tveimur yfir pari Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk fyrsta hringnum á Meideira mótinu í golfi á 74 höggum í dag eða tveimur höggum yfir pari. Mótið er liður í Evrópumótaröðinni. Hann er sem stendur í kring um 70. sætið af 144 keppendum, en 70 efstu komast í gegn um niðurskurð á morgun. Golf 22.3.2007 18:30
Birgir Leifur á pari eftir tíu holur Birgir Leifur Hafþórsson er á pari eftir 10 holur á opna Madeiramótinu í golfi. Birgir Leifur fékk fugl á 3. holu en skolla á þeirri áttundu. Hann hefur parað hinar holurnar. Englendingurinn Peter Baker hefur forystu, á 5 undir pari eftir 13 holur en annar er Daninn Mats Vibe-Hastrup, höggi á eftir. Golf 22.3.2007 11:30
Birgir Leifur byrjaður á Madeira Birgir Leifur Hafþórsson er á einu höggi undir pari eftir 4 holur á opna Madeira mótinu í golfi sem hófst á Santo da Serra vellinum í morgun. Birgir Leifur paraði tvær fyrstu holurnar en fékk síðan fugl á fjórðu holu. Hann er á einu undir pari eftir 5 holur. Golf 22.3.2007 10:10
Singh sigraði á Arnold Palmer Invitational Fiji-maðurinn Vijay Singh sigraði á Arnold Palmer Invitational mótinu í golfi sem lauk á Bay Hill vellinum í kvöld. Singh lék lokahringinn á þremur höggum undir pari og lauk keppni á átta undir. Þetta var 31. sigur hans á PGA mótaröðinni á ferlinum og langþráður sigur hjá honum á þessu tiltekna móti þar sem hann hafði þrisvar hafnað í öðru sæti. Golf 18.3.2007 22:37
Frábær árangur hjá Birgi Leifi Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson náði sínum besta árangri í Evrópumótaröðinni í golfi þegar hann varð í 25-33. sæti á móti á TCL meistaramótinu í Kína. Birgir Leifur fékk 630 þúsund krónur í verðlaunafé og lék lokahringinn í nótt á 68 höggum, eða fjórum höggum undir pari. Golf 18.3.2007 13:58
Birgir lék á pari Birgir Leifur Hafþórsson lék þriðja hringinn á TCL-mótinu í Kína á pari í nótt og er því enn á sex höggum undir pari á mótinu. Birgir er í 47.-55. sæti á mótinu, en tælenski kylfingurinn Chapchai Nirat er í forystu á mótinu á 21 höggi undir pari. Golf 17.3.2007 14:19
Birgir Leifur áfram í Kína Birgir Leifur Hafþórsson lék í morgun á tveimur höggum undir pari á TCL-mótinu á Hainan eyju í Kína. Birgir er í 37-54. sæti á 6 höggum undir pari og heldur áfram keppni tvo næstu dagana. Birgir Leifur fékk 3 fugla og einn skolla á hringnum í morgun. Tælendingurinn Chapchai Nirat hefur örugga forystu, er á 17 höggum undir pari og er 6 höggum á undan 5 kylfingum sem eru jafnir í 2-6. sæti. Golf 16.3.2007 11:37
Frábær byrjun hjá Birgi Leifi í Kína Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson byrjaði mjög vel á TCL mótinu í Kína í nótt þegar hann lauk fyrsta hringnum á 68 höggum - eða fjórum höggum undir pari. Tælendingurinn Chapchai Nirat setti vallarmet þegar hann spilaði hringinn á 61 höggi. Golf 15.3.2007 14:00
Wilson sigraði á Honda Classic eftir bráðabana Mark Wilson sigraði á Honda Classic PGA-mótinu í Flórída í dag eftir fjögurra manna bráðabana – fékk fugl á meðan Jose Coceres rétt missti fuglinn af um þriggja metra færi á þriðju holu í bráðabana. Þetta var jafnframt fyrsti sigur Wilsons á PGA-mótaröðinni. Golf 5.3.2007 14:44
Wi efstur á Honda Classic Charlie Wi frá Suður Kóreu hefur eins höggs forystu á Honda Classic mótinu í golfi sem hófst í gær. Bernhard Langer frá Þýsklandi stal senunni í gær. Golf 2.3.2007 13:12
Stenson algjörlega búinn á því “Ég er of þreyttur til að geta fagnað,” sagði hinn sænski Henrik Stenson, nýkrýndur heimsmeistari í holukeppni, eftir að hafa lagt Ástralann Geoff Ogilvy af velli í úrslitum í gær. Stenson spilaði 120 holur á fimm dögum í Arizona og segir sá sænski að mótið hafi verið hans mesta þolraun til þessa á ferlinum. Golf 26.2.2007 16:30
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn
Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn