Innlent
82 83 84 85 86 87 88 89 90 … 334 ›
Búin að sjóða vatn í rúman mánuð og segir íbúa ekki treysta vatnsbólinu Í annað sinn á rúmum mánuði þurfa íbúar Stöðvarfjarðar að sjóða neysluvatn eftir að E Coli sýking kom upp. Íbúi á svæðinu segir bresti í upplýsingagjöf sveitarfélagsins og að traustið gagnvart vatnsbólinu sé lítið. Innlent 12.9.2025 13:31
Þurfa 12-15 milljónir til að halda Ylju opinni um helgar Deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins biðlar til stjórnvalda um að gefa Ylju neyslurými þær 12-15 milljónir sem upp á vantar til að hægt sé að reka neyslurýmið alla daga ársins. Það sé samfélagslegt verkefni að bjóða þeim sem leita til þeirra upp á öryggt rými sjö daga vikunnar. Innlent 12.9.2025 13:26
Lýðræðislegri umræðu og samstöðu ógnað Fjórtán lykiláherslur Íslands í öryggis- og varnarmálum voru kynntar í nýrri skýrslu samráðshóps þingmanna í morgun. Fyrrverandi utanríkisráðherra segir þessi mál hafa setið á hakanum síðustu ár og skortur á rýningu á fjárfestingum erlendra aðila hafa verið ákveðinn akkílesarhæl. Innlent 12.9.2025 13:04
Ísland gæti þurft að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða til að standa við skuldbindingar Að óbreyttu stefnir í að Ísland þurfi að kaupa losunarheimildir fyrir að minnsta kosti ellefu milljarða króna til að geta staðið við skuldbindingar í loftslagsmálum, þar sem ekki hefur tekist að halda í við markmið á síðustu árum. Ráðherra hefur gert tillögu að nýju landsákvörðuðu framlagi Íslands til Parísarsamningsins fyrir árið 2035, þar sem meðal annars er stefnt að 50-55 prósenta samdrætti í samfélagslosun og umtalsverðum samdrætti í losun frá landi. Innlent 12.9.2025 11:54
Starfsmannafundur hjá Play og enn leitað að morðingja Charlie Kirk Í hádegisfréttum fjöllum við um starfsmannafund sem boðað var til í morgun hjá flugfélaginu Play. Innlent 12.9.2025 11:36
Hæstiréttur tekur fyrir mál móður sem dæmd var í 18 ára fangelsi Hæstiréttur Íslands hefur samþykkt að taka til meðferðar mál móður sem dæmd var í 18 ára fangelsi fyrir að ráða sex ára syni sínum bana og reyna að svipta ellefu ára son sinn lífi í janúar í fyrra. Innlent 12.9.2025 10:42
Bein útsending: Áherslur og forgangsaðgerðir Íslands í loftslagsmálum Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, mun í dag kynnar áherslur og forgangsaðgerðir ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum og landsákvörðuðu framlagi Íslands gagnvart Parísarsamningnum. Innlent 12.9.2025 10:31
Ríflega þúsund börn bíða eftir að komast að en ekki 400 Til viðbótar við þau 400 börn 12 mánaða og eldri á bið eftir leikskólaplássi í Reykjavík hafa 786 börn fengið boð um leikskólapláss en ekki hafið leikskólagöngu. Oddviti Sjálfstæðismanna í borginni segir meirihlutann beita gamalkunnum brellum í umfjöllun um stöðu leikskólamála. Innlent 12.9.2025 10:09
Fjórtán áherslur í varnar- og öryggismálum: „Öryggisógnin er raunveruleg og aðkallandi“ Fjórtán lykiláherslur Íslands í öryggis- og varnarmálum eru skilgreindar í nýrri skýrslu samráðshóps þingmanna sem lagt er til að hafðar verði að leiðarljósi við mótun varnar- og öryggisstefnu fyrir Ísland. Raunveruleg og aðkallandi öryggisógn steðji að Íslandi sem beri að taka alvarlega. Meðal annars er lagt til að ráðist verið í endurskoðun varnarlaga og skoðað hvort setja eigi sérstaka öryggislöggjöf á Íslandi. Innlent 12.9.2025 09:51
Staðfesta dóm yfir tvíburabræðrunum en refsing Samúels Jóa milduð Landsréttur staðfesti í gær tveggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir tvíburabræðrunum Elíasi og Jónasi Shamsudin vegna stórfellds fíkniefnabrots. Dómur yfir Samúel Jóa Björgvinssyni í sama máli var hins vegar mildaður úr þriggja og hálfs árs fangelsi í þriggja ára fangelsi. Innlent 12.9.2025 08:40
Bein útsending: Skýrsla samráðshóps um inntak og áherslur stefnu í varnar- og öryggismálum Ný skýrsla samráðshóps þingmanna um inntak og áherslur stefnu í varnar- og öryggismálum verður kynnt á opnum fundi á verum utanríkisráðuneytisins og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 12.9.2025 08:01
Tveir handteknir fyrir húsbrot og einn fyrir að vera ólöglega á landinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo í tengslum við húsbrot í gærkvöldi eða nótt, í tveimur aðskildum málum, og þriðja sem er grunaður um að dvelja ólöglega á landinu. Innlent 12.9.2025 06:35
Íslendingar í meistaradeild þrátt fyrir herleysið Stærsta sprengjueyðingaræfing sinnar tegundar fer nú fram hér á landi. Yfirliðsforingi frá Bretlandi segir Íslendinga í fremstu röð þegar kemur að slíkum aðgerðum, og danskur majór segir engu máli skipta þótt Íslendingar séu herlaus þjóð. Innlent 11.9.2025 23:02
Helgarlokanir leiði fólk til þess að nota efnin í bílakjöllurum Verkefnastjóri neyslurýmisins Ylju segir starfsfólk hafa miklar áhyggjur af skjólstæðingum sínum um helgar, þegar rýmið er lokað. Þá sé meiri hætta á að fólk setji sig í hættulegar aðstæður, og noti vímuefni á víðavangi. Aðsókn í rýmið hefur stóraukist að undanförnu Innlent 11.9.2025 22:03
Vinirnir vestanhafs hafi áhyggjur af stigmögnun Þingmaður Framsóknarflokksins, sem stundaði nám í Bandaríkjunum, segist hafa áhyggjur af stigmögnun og skautun í bæði bandarísku og íslensku samfélagi og taka vinirnir vestanhafs undir þær áhyggjur. Hún þekkti sjálf þingmann demókrata sem var myrt í sumar og vísar í morðið á Charlie Kirk, bandarískum áhrifavaldi sem var myrtur í gærkvöldi. Innlent 11.9.2025 21:55
Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Íslendingar eiga enn eftir að uppgötva Grænland sem ferðamannaland en yfirgnæfandi meirihluti farþega Icelandair þangað eru útlendingar. Innlent 11.9.2025 21:41
Samfélagslegur sparnaður vegna herferðar rúmlega 700 milljónir Símanotkun við akstur minnkaði umtalsvert á síðasta ári í kjölfar herferðarinnar Ekki taka skjáhættuna. Kostnaður vegna umferðaslysa sem tengd eru símanotkun hleypur á milljörðum árlega en deildarstjóri Samgöngustofu segir vandamálið með þeim stærri í umferðinni í dag. Innlent 11.9.2025 21:03
Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, og Stefán Einar Stefánsson ræddu umræðu sem hefur skapast eftir morðið á bandaríska áhrifavaldinum Charlie Kirk sem var myrtur í gær. Hugtök líkt og málfrelsi og þöggun hafa verið áberandi í íslensku samfélagi undanfarna daga. Innlent 11.9.2025 19:52
Kaldavatnslaust í hluta Laugardalsins Mikið vatn hefur lekið frá lögn í Laugardalnum í Reykjavík, við Engjaveg, og hefur pollur sem myndast hefur á veginum valdið vandræðum hjá ökumönnum. Starfsmenn Veitna eru á vettvangi að vinna að viðgerð. Innlent 11.9.2025 19:22
Stefán Einar og Sigmar ræða skautun í kjölfar voðaverks Óttast er að morðið á bandaríska áhrifavaldinum Charlie Kirk muni valda enn frekari skautun í samfélaginu. Málið hefur vakið gríðarlega athygli og flaggað er í hálfa stöng við sendiráð Bandaríkjamanna á Íslandi. Í kvöldfréttum á Sýn förum við yfir feril hans. Þá mæta þeir Stefán Einar Stefánsson blaðamaður og Sigmar Guðmundsson þingmaður í myndver og ræða möguleg áhrif málsins. Innlent 11.9.2025 18:02
Fjórtán geta búist við sekt Eigendur fjórtán ökutækja geta átt von á sekt vegna stöðubrots í Garðabæ er segir í dagbók Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hún hafði afskipti af fjölda ökumanna í dag. Innlent 11.9.2025 17:46
Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla í Reykjanesbæ á þriðjudaginn. Skólastjóri segir málið í mjög góðum farvegi. Innlent 11.9.2025 16:56
„Þetta eru ekki góðar móttökur“ Rannsóknarstofan Sameind sækist eftir með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála að byggingarleyfi fyrir starfsemi Konukots í Ármúla verði fellt úr gildi. Talsmaður Konukots segir kæruna skrímslavæðingu á jaðarsettum hópum en í henni lýsa forsvarsmenn Sameinda meðal annars áhyggjum af því að skjólstæðingar Konukots gætu smitað skjólstæðinga Sameinda af berklum. Innlent 11.9.2025 16:55
E.Coli staðfest í neysluvatninu á Stöðvarfirði Niðurstöður Heilbrigðiseftirlits Austurlands staðfesta að kólí og E.coli hafi greinst í neysluvatninu á Stöðvarfirði. Nauðsynlegt er að sjóða allt vatn til neyslu. Innlent 11.9.2025 14:52
„Froðuhagnaður“ Félagsbústaða haldi borginni á floti Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir nýjan árshlutareikning Reykjavíkurborgars sýna fram á að meirihlutinn hafi enga stjórn á fjármálum borgarinnar. Innlent 11.9.2025 14:27
Launahækkanir þungur baggi á borginni Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var jákvæð um 3,3 milljarða króna fyrir fjármagnsliði og afskriftir á fyrri hluta ársins, sem er 600 milljörðum króna minni afgangur en búist var við. Eftir fjármagnsliði og afskriftir var 47 milljóna króna halli á rekstri borgarinnar. Áhrif kjarasamninga eru sögð vega þungt í rekstrinum. Innlent 11.9.2025 13:42
Trump nýti sér morðið til frekari valdtöku Prófessor í stjórnmálafræði telur líklegt að morðið á Charlie Kirk muni leiða til frekari skautunar í bandarísku samfélagi. Eins muni Bandaríkjaforseti líklega nýta sér tilefnið til að seilast enn lengra og taka sér frekari völd. Innlent 11.9.2025 12:59
Fjörugar umræður um fjárlög: Hóflegur útgjaldavöxtur, vonbrigði eða della? Lagt er upp með að ný útgjöld ríkisins verði fjármögnuð með tilfærslum og sparnaði og að vöxtur ríkisútgjalda á næsta ári verði hóflegur. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra þegar hann mælti fyrir fjárlögum næsta árs á Alþingi í morgun. Innlent 11.9.2025 12:48
Fjárlögin litlaus líkt og hann sjálfur Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hvetja ríkisstjórnina til þess að ná niður halla á fjárlögum með sölu á Landsbankanum. Umræða um fjárlagafrumvarpið hófst á Alþingi í morgun og segir fjármálaráðherra þau aðhaldssöm og jafnvel litlaus - líkt og hann sjálfur. Innlent 11.9.2025 11:53
Tekist á um fjárlagafrumvarpið og morðið á Charlie Kirk Í hádegisfréttum fjöllum við um fjárlagafrumvarpið sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra mælti fyrir í morgun. Innlent 11.9.2025 11:34